Seinni bylgjan: Fýlustrumpurinn hættur að taka frekjuhopp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2019 10:00 Einar Rafn Eiðsson. Vísir/Bára
Menn geta misst stjórn á sér í handboltaleikjum en þá geta þeir hinir sömu líka bókað það að Seinni bylgjan mun taka þá fyrir. Seinni bylgjan tók fyrir FH-inginn Einar Rafn Eiðsson og pirringskast hans í leiknum á móti Aftureldingu í þættinum í gær. „Það var annar sem var brjálaður í þessum leik. Hvað kallaðir þú hann í Fram?,“ spurði Tómas Þór Þórðarson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar, Jóhann Gunnar Einarsson sem lék með Einari á sínum tíma. „Hann var kallaður fýlustrumpurinn,“ svaraði Jóhann Gunnar og svo var farið yfir af hverju Einar Rafn var orðinn svona pirraður. „Hann pirrast, lætur dómarana heyra það og öskrar í treyjuna sína. Keppnismaður mikill. Hérna er hann síðan að fara aðeins yfir málin með Antoni Gylfa Pálssyni dómara,“ sagði Tómas. „Anton segir honum greinilega að róa sig aðeins. Vertu smíðastrumpur eða eitthvað,“ segir Tómas í léttum tón. „Svo tryllist hann og þarna segir Anton Gylfi Pálsson við Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfara FH: Annaðhvort tekur þú þennan mann útaf eða ég sendi hann útaf í tvær mínútur. Halldór var ekki lengi að taka hann útaf,“ sagði Tómas. Jóhann Gunnar vildi þó koma því að með Einar Rafn að hann væri búinn að bæta sig í einu í þessum fýluköstum sínum. „Þegar hann var í Fram þá hoppaði hann alltaf svona jafnfætis og tók frekjuhopp. Hann er hættur því,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson. Það má finna alla umfjöllunina um pirringskast Einars hér fyrir neðan.Klippa: Seinni bylgjan: Fýlustrumpurinn hættur að taka frekjuhopp
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira