Viðskipti innlent

Seldi í Siggi's Skyr með 3,4 milljarða hagnaði

Hörður Ægisson skrifar
Sigurður Kjartan Hilmarsson stofnaði The Icelandic Milk and Skyr Corporation í New York árið 2006.
Sigurður Kjartan Hilmarsson stofnaði The Icelandic Milk and Skyr Corporation í New York árið 2006.
Eignarhaldsfélagið Eldhrímnir, sem er í eigu hjónanna Ingimundar Sveinssonar arkitekts og Sigríðar Arnbjarnardóttur, ásamt þremur börnum þeirra, hagnaðist um liðlega 3,4 milljarða króna á síðasta ári vegna sölu á hlut sínum í fyrirtækinu The Icelandic Milk and Skyr Corporation, betur þekktu sem Siggi’s Skyr.

Þetta má lesa út úr nýbirtum ársreikningi Eldhrímnis. Félag Ingimundar og fjölskyldu, sem lagði The Icelandic Milk and Skyr Corporation fyrst til fjármuni við stofnun þess 2006, var á meðal helstu hluthafa fyrirtækisins þegar það var selt til franska mjólkurrisans Lact­alis fyrir að lágmarki 370 milljónir Bandaríkjadala í ársbyrjun 2018. Það jafngildir um 40 milljörðum króna miðað við þáverandi gengi.

The Icelandic Milk and Skyr Corporation, sem var stofnað sem kunnugt er af Sigurði Kjartani Hilmarssyni, var í um 75 prósenta eigu Sigurðar, ættingja hans, vina og annarra sem þeim tengjast. Þá átti svissneski mjólkurframleiðandinn Emmi Group, eini fagfjárfestirinn í hluthafahópnum, um 22 prósenta hlut og nam hagnaður félagsins við söluna til Lactalis, eins og upplýst var um í Markaðinum fyrr á þessu ári, samtals um 80,9 milljónum dala.

Fram kemur í ársreikningi Eldhrímnis að hagnaður félagsins hafi numið samtals 3,5 milljörðum 2018 en þar munaði langsamlega mest um söluhagnað hlutabréfaeignar að fjárhæð rúmlega 3,39 milljarðar. Heildareignir í lok síðasta árs námu 3,92 milljörðum og eigið fé var um 3,78 milljarðar. Eignir Eldhrímnis samanstóðu einkum af verðbréfum, eða fyrir um þrjá milljarða, og þá nam bókfært virði eignarhluta í ýmsum félögum, meðal annars Flor­ealis, Hval hf. og Matorku, samtals um 700 milljónum.

Sonur Ingimundar, Sveinn, var á meðal fyrstu samstarfsmanna Sigurðar þegar hann stofnaði fyrirtækið í New York og hannaði meðal annars umbúðirnar um skyrið. Var Sveinn jafnframt í hópi stærstu hluthafa skyrfyrirtækisins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×