Ómar Ingi með stórleik er Álaborg tryggði sig í bikarúrslit Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. mars 2019 16:53 Ómar Ingi Magnússon fann sig ekki á HM en hann leikur við hvern fingur með félagsliði sínu vísir/getty
Íslendingalið Álaborgar spilar til úrslita í dönsku bikarkeppninni í handbolta eftir tveggja marka sigur á Bjerringbro-Silkeborg í undanúrslitunum. Ómar Ingi Magnússon átti stórleik fyrir Álaborg með 7 mörk og 5 stoðsendingar í 29-27 sigri Álaborgar. Síðasta stoðsending Ómars var á Janus Daða Smárason sem skoraði síðasta mark leiksins og hans eina mark í leiknum. Liðunum gekk illa að skora í upphafi og voru aðeins komin tvö mörk í leikinn, eitt á hvort lið, þegar sex mínútur voru liðnar. Það jókst aðeins markaskorunin þegar leið á hálfleikinn og í hálfleik var staðan 18-17 fyrir Álaborg. Bjerringbro átti fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og komst því yfir. Álaborg svaraði strax fyrir sig og endurheimti forystuna með tveimur mörkum í röð. Leikurinn var í járnum allan seinni hálfleikinn. Munurinn á liðunum fór mest í þrjú mörk þegar hálfleikurinn var rétt hálfnaður og Bjerringbro komst í 23-26. Álaborg náði að jafna leikinn aftur og komst yfir á 55. mínútu með marki frá Magnus Saugstrup 28-27. Meira var ekki skorað í leiknum fyrr en Janus Daði kom boltanum í netið með tvær sekúndur á klukkunni, lokastaðan 29-27. Álaborg spilar því til úrslita á morgun og mætir þar Skanderborg sem hafði betur gegn Århus í fyrri undanúrslitaleiknum.
Handbolti Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira