Færir sig á milli Akureyrarliðanna og er aftur kominn heim Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2019 12:00 Haddur Júlíus Stefánsson, formaður Handknattleiksdeildar KA og Patrekur Stefánsson handsala samninginn. Mynd/KA
Patrekur Stefánsson er aftur orðinn leikmaður KA í handboltanum. Hann skrifaði undir samning við félagið í gær. Patrekur Stefánsson skrifaði undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild KA og er að snúa aftur til síns uppeldisfélags. Patrekur hefur ekki spilað áður með meistaraflokki KA en Patrekur er engu að síður uppalinn hjá KA. Hann steig sín fyrstu spor í meistaraflokki með Akureyri Handboltafélagi og fór ekki yfir í KA þegar þeir gulu slitu samstarfinu vorið 2017. Patrekur var með 3,1 mark og 1,4 stoðsendingu að meðaltali í leik með Akureyri í Olís deildinni í vetur en liðið féll úr deildinni. Patekur skoraði 51 mark í 17 leikjum þegar Akureyri fór upp úr Grill 66 deild karla vorið 2018. „Á síðasta tímabili var hann einn markahæsti leikmaður Akureyrar í Olís deildinni sem og tímabilið áður er liðið tryggði sér sæti í Olís deildinni. Það er ljóst að koma Patreks eru mikil gleðitíðindi og mun klárlega styrkja okkar öfluga lið sem ætlar sér enn stærri hluti á komandi vetri,“ segir í fréttatilkynningu frá KA. KA-menn fengu einnig Daníel Örn Griffin frá ÍBV fyrr í sumar og hafa því verið að styrkja liðið sitt fyrir átökin næsta vetur.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira