Einar Andri hættir með Aftureldingu eftir tímabilið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2019 13:00 Einar Andri er á sínu sjötta tímabili hjá Aftureldingu. vísir/bára
Einar Andri Einarsson lætur af störfum sem þjálfari Aftureldingar þegar samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið. Þetta staðfesti Einar Andri í samtali við Vísi í dag. Hann tilkynnti stjórnarmönnum Aftureldingar um ákvörðun sína fyrr í vikunni. „Þetta er sjötta tímabilið mitt hjá Aftureldingu og ég tel að það sé kominn tími á breytingar. Þetta hefur verið frábær tími og frábært að vinna fyrir Aftureldingu. Markmiðið er að klára tímabilið af krafti,“ sagði Einar Andri. Hann tók við Aftureldingu sumarið 2014. Á hans fyrsta tímabili við stjórnvölinn komst Afturelding, sem var þá nýliði, í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í 16 ár. Í úrslitunum töpuðu Mosfellingar fyrir Haukum, 3-0. Tímabilið 2015-16 komst Afturelding aftur í úrslitaeinvígið en tapaði aftur fyrir Haukum, 3-2. Á þriðja tímabili Einars Andra komst Afturelding í bikarúrslit í fyrsta sinn í 14 ár. Liðið laut þar í lægra haldi fyrir Val, 26-22. Á síðasta tímabili lenti Afturelding í 6. sæti Olís-deildar karla og féll úr leik fyrir Val, 2-0, í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Áður en Einar Andri tók við Aftureldingu var hann þjálfari FH í fimm ár. Undir stjórn hans og Kristjáns Arasonar urðu FH-ingar Íslandsmeistarar 2011. Afturelding er í 2. sæti Olís-deildar karla með 17 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka. Mosfellingar mæta KA-mönnum fyrir norðan á morgun.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira