Fallslagur á Nesinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. febrúar 2019 08:45 Úr fyrri leik Gróttu og Fram í vetur vísir/daníel
Sautjánda umferð Olís-deildar karla hefst í kvöld með fjórum leikjum. Mikið verður undir á Seltjarnarnesinu þar sem botnlið Gróttu tekur á móti Fram sem er í 10. sæti deildarinnar. Aðeins eitt stig skilur liðin að. Fram vann Akureyri, 26-28, í síðustu umferð en það var fyrsti sigur liðsins frá 25. nóvember á síðasta ári. Grótta tapaði hins vegar fyrir Haukum, 25-21, á útivelli í síðustu umferð. Grótta vann fyrri leikinn gegn Fram, 20-24. Frammarar verða því að vinna fimm marka sigur í kvöld til að ná yfirhöndinni í innbyrðis viðureignum liðanna. Akureyri, sem er í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með átta stig, sækir Íslands-, bikar- og deildarmeistara ÍBV heim. Akureyringar bíða enn eftir sínum fyrsta sigri undir stjórn Geirs Sveinssonar sem tók við liðinu um áramótin. Eyjamenn eru í 6. sæti deildarinnar. Haukar, sem hafa unnið fjóra leiki í röð, geta aukið forskot sitt á toppnum í þrjú stig með sigri á Stjörnunni sem er sigurlaus í síðustu fimm leikjum sínum. Þá mætast ÍR og KA í Breiðholti. KA-menn eru með 13 stig í 8. sætinu en ÍR-ingar í því níunda með tólf stig. Fyrri leikur liðanna fór 25-25. Stigin tvö sem í boði eru í kvöld eru því afar dýrmæt í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.
Birtist í Fréttablaðinu Olís-deild karla Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira