Verður fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Eistlands Atli Ísleifsson skrifar 4. mars 2019 08:43 Hin 41 árs Kaja Kallas átti sæti á Evrópuþinginu á árunum 2014 til 2018. AP
Umbótaflokkurinn, sem setið hefur í stjórnarandstöðu síðustu ár, vann sigur í eistnesku þingkosningunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn, sem er hægra megin við miðju, hlaut 29 prósent atkvæða, en Miðflokkurinn, sem leitt hefur ríkisstjórn síðustu ár, hlaut 23 prósent. Kaja Kallas, fyrrverandi Evrópuþingmaður, leiðir Umbótaflokkinn og stefnir allt í að hún verði fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Eistlands. Íhaldssami þjóðarflokkur Eistlands (EKRE), var þriðji, hlaut tæp 18 prósent og tvöfaldaði fylgi sitt, en hann hefur barist fyrir því að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð Eistlands innan Evrópusambandsins. Kallas hefur sagst reiðubúin að starfa með öllum flokkum, að frátöldum EKRE. Í frétt BBC segir að nærri fjórðungur atkvæðisbærra manna hafi greitt atkvæði á netinu. Alls voru 881 þúsund manns á kjörskrá. Umbótaflokkurinn og Miðflokkurinn hafa skipst á að fara með völd í landinu frá því að landið lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum. Flokkarnir styðja báðir áframhaldandi aðild Eistlands að ESB og NATO. Ekki er útilokað að Umbótaflokkurinn og Miðflokkurinn muni mynda saman ríkisstjórn, þó að Kallas hafi bent á að flokkarnir hafi ólíka sýn á skattamál, menntamál og borgaramál.
Eistland Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira