Körfubolti

LeBron gaf stoð­sendingu númer níu þúsund í sigri Lakers | Mynd­bönd

Anton Ingi Leifsson skrifar
LeBron í kröppum dansi í nótt.
LeBron í kröppum dansi í nótt. vísir/getty

LA Lakers vann sinn annan leik í röð í nótt er liðið vann þrettán stiga sigur á Dallas á heimaveli, 108-95.

Lakers hafði ekki unnið í fjórum leikjum í röð fyrir leikinn gegn Portland Trail Blazers í fyrri nótt en hefur nú unnið tvo leiki í röð.

LeBron James skoraði 13 sig, gaf 13 stoðsendingar og tók sex fráköst í liði Lakers. Þar á meðal stoðsendingu númer níu þúsund í NBA körfuboltanum.

Lakers menn höfðu ágætis tök á Luka Doncic sem hefur verið stórbrotinn í vetur en hann gerði þó 19 stig. Anthony Davis var stigahæstur Lakers með 23 stig.





Öll úrslit næturinnar:

Oklahoma - Toronto 98-97

Houston - New Orleans 112-127

Sacramento - Denver 115-120

Charlotte - Memphis 104-117

Dallas - LA Lakers 95-108



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×