Viðskipti innlent

Kaup Fréttablaðsins á DV staðfest

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Höfuðstöðvar Fréttablaðsins við Hafnartorg þangað sem Hringbraut hefur nú einnig flutt sig.
Höfuðstöðvar Fréttablaðsins við Hafnartorg þangað sem Hringbraut hefur nú einnig flutt sig. Vísir/Vilhelm

Torg ehf sem gefur út Fréttablaðið hefur fest kaup á tilteknum eignum Frjálsrar fjölmiðlunar þar á meðal útgáfuréttinum að DV og vefmiðlinum DV.is ásamt gafnasafni.

Davíð Stefánsson, ritstjóri Fréttablaðsins, greinir sjálfur frá þessu í frétt á Fréttablaðinu. Samningurinn er með fyrirvara um samþykki fjölmiðlanefndar og Samkeppniseftirlitsins.

DV áfram gefið út á prenti

Starfsmannafundur hófst á Hafnartorgi klukkan 10 þar sem tíðindunum var deilt með starfsfólki. Samkvæm heimildum Vísis hefur starfsfólki hjá Fréttablaðinu verið tilkynnt að DV verði áfram gefið út á prentformi. Blaðið hefur verið gefið út á föstudögum undanfarin misseri. 

Þá var áréttað að um kaup væri að ræða, ekki sameiningu. Um væri að ræða tækifæri til að eiga stærstu vefmiðla landsins. Var meðal annars spurt af hverju DV væri líklegt til að hætta að tapa peningum með því að flytjast yfir á Fréttablaðið. Þeirri fyrirspurn var ekki svarað formlega en einhverjir höfðu á orði að samnýting á prentsmiðju og húsnæði myndi hjálpa til.

Vefirnir ekki sameinaðir

Unnið hefur verið að sameiningu Frjálsar fjölmiðlunar, útgáfufélags DV, og Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins, um nokkurn tíma samkvæmt heimildum Vísis. Kjarninn greindi frá því í gærkvöldi að líklegt væri að tilkynnt yrði um um niðurstöðu þeirra viðræðna í dag - sem nú hefur verið gert.

Helgi Magnússon fjárfestir er eigandi Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins, og sömuleiðis sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar. Helgi keypti Fréttablaðið í tveimur aðskildum viðskiptafléttum, fyrst helminginn í sumar og svo restina í október.

Helgi vildi ekki tjá sig um kaupin í samtali við fréttastofu og vísaði á Jóhönnu Helgu Viðarsdóttur, forstjóra Torgs. Helgi sagði samkvæmt heimildum Vísis á starfsmannafundinum í morgun að ekki stæði til að sameina vefina tvo, DV.is og frettabladid.is.

Stefndi í gjaldþrot Hringbrautar

Jón Þórisson lögfræðingur tók við sem ritstjóri Fréttablaðsins og starfar við hlið Davíðs Stefánssonar en Ólöf Skaftadóttir lét af störfum. Áður hafði Kristín Þorsteinsdóttir hætt sem útgefandi blaðsins.

Í framhaldinu var tilkynnt um samruna Hringbrautar og Fréttablaðsins sem samþykktur var af Samkeppniseftirlitinu seint í nóvember. Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins kom fram að Hringbraut hefði að óbreyttu stefnt í þrot hefði ekki orðið af sameiningunni. Rekstri þess hefði verið sjálfhætt þar sem afkoman væri afleit.

Rekstur Torgs hefði hins vegar verið „réttum megin við núllið“ en ljóst hafi verið að lítið megi út af bregða til að ekki fari illa.

Þriðji risinn á einkamarkaði

Um verður að ræða einu fjölmiðlasamsteypuna sem gefur út á prenti, vef og sjónvarpi. Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis flytur fréttir á vef, sjónvarpi og útvarpi. Árvakur flytur fréttir á prenti, vef og útvarpi í Morgunblaðinu, Mbl.is og K100. 

Segja mætti að þriðji risinn bættist í hóp fyrrnefndra tveggja sem flutt hafa fréttir á þremur tegundum miðla.

Frjáls fjölmiðlun hóf starfsemi í september 2017 með kaupum á DV, DV.is, Eyjunni, Pressunni, Bleikt, Birtu, Doktor.is, 433.is og ÍNN sem síðar fór í þrot. Sigurður. G. Guðjónsson lögmaður er skráður eigandi Dalsdals ehf. sem er eigandi að öllu hlutafé í félaginu. Aldrei hefur komið fram hver fjármagnar Dalsdal.

Tap Frjálsrar fjölmiðlunar var um 240 milljónir króna árið 2018 í framhaldi af 43,6 milljóna króna tapi fyrstu fjóra mánuðina eftir kaupin, á seinni hluta ársins 2017, að því er fram kemur í úttekt Kjarnans. Samstæðan skuldaði 610 milljónir í lok árs 2018.

Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins þótt lestur blaðs­ins hafi dreg­ist umtals­vert saman síð­ast­liðin ár, en hann var um 64 pró­sent árið 2010. Í dag er hann 37,8 pró­sent. Hjá Íslend­ingum undir fimm­tugu hefur hann á sama tíma­bili farið úr um 64 pró­sentum í 28,2 pró­sent.


Tengdar fréttir

Undanþága vegna Torgs og Hringbrautar

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt undanþágu á samkeppnislögum vegna yfirtöku Torgs, sem á og rekur meðal annars Fréttablaðið, á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×