Innlent

Nýr bóksölulisti: Dóri DNA nýstirni ársins í bóksölunni

Jakob Bjarnar skrifar
Gulldrengurinn Dóri DNA má vel við una en það stefnir í að hann megi heita nýstirni þessarar jólabókavertíðar.
Gulldrengurinn Dóri DNA má vel við una en það stefnir í að hann megi heita nýstirni þessarar jólabókavertíðar. visir/vilhelm

„Arnaldur Indriðason situr sem fyrr í efsta sæti listans en Ævar Þór Benediktsson hefur fundið sitt eigið annað sæti fyrir Þinn eigin tölvuleik,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút en hún er sérfræðingur Vísis í bóksölunni.

Hún rýnir í glænýjan bóksölulista með blaðamanni Vísis og þetta er það helsta sem hún rekur augu í. Segir að það hafi fáum tekist að komast upp á milli þeirra Arnaldar og Yrsu gegnum tíðina og því megi þetta heita frábær árangur hjá Ævari.

Keto-bókin á toppi uppsafnaðs lista

„Þess má aukinheldur geta að  á sama tíma fyrir ári síðan sat bók hans, Þitt eigið tímaferðalag, í 7. sæti listans svo þetta er heljarinnar stökk.“

Bryndís Loftsdóttir. Sérfræðingur Vísis í bóksölunni segir ekki annað hægt en elska Björgvin Pál

Já, Arnaldur trónir á toppnum sem fyrr en þó er einn sem nær að ógna honum og hann heitir Gunnar Már Sigfússon, því ef litið er til lista yfir uppsafnaða bóksölu frá síðustu áramótum þá er hann þar á toppi lista með bókina sína um Keto – hormónalausnin.

Heilt yfir má segja að íslenska skáldsagan megi vel við una þegar litið er til aðallista vikunnar. Bryndís segir að áhugavert sé að skoða íslenska skáldverkalistann.

„Dóri DNA verður að teljast nýstirni ársins í þeim flokk, fyrsta skáldsaga hans, Kokkáll, hefur rokið upp metsölulistann að undanförnu. Dóri skákar nú fjölmörgum þaulreyndum, margverðlaunuðum og vel þekktum höfundum sem sitja neðar á listanum eða ná alls ekki inn á hann,“ segir Bryndís.

Eldri hopa fyrir þeim sem yngri eru

Aðrir nýir höfundar sem vakið hafa athygli bókakaupenda eru Bergþóra Snæbjörnsdóttir sem fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Svínshöfuð, Eva Björg Ægisdóttir með sína aðra glæpasögu, Stelpur sem ljúga og Bjarni Hafþór Helgason með frumraun sína, smásagnasafnið Tími til að tengja.

Sá eini sem nær að stríða Arnaldi er Gunnar Már með sína Keto-bók.

„Kalt mat á skáldverkaútgáfu ársins miðað við sölu síðustu viku er að meiri hluti bókakaupenda sækist áfram eftir glæpasögum en ný kynslóð höfunda er að stimpla sig rækilega inn á meðan eldri höfundar virðast hopa.“

Sé litið til fræðibókalistans, þá er Útkallið áfram í fyrsta sæti líkt og reyndar meira og minna síðast liðin 25 ár. Í öðru sæti er bók Andra Snæs Magnasonar, Um tímann og vatnið og Síldarár Páls Baldvins Baldvinssonar situr í þriðja sæti. Hún er jafnframt lengsta og þyngsta bók þessa jólabókaflóðs, heilar 1151 bls. og 3,4 kg á þyngd.

„Björgvin Páll Gústavsson virðist svo ætla að eiga ævisögu ársins, bók hans hefur setið á toppi ævisagnalistans frá því að hún kom út og ekki að undra;

það er ekki hægt annað en að elska þennan dreng,“

segir Bryndís sem greinilega kann að meta góðan handbolta meðfram bóklestri. 

 

Bóksölulistinn 9. – 15. desember 2019

Topplistinn – 20 mest seldu titlarnir             

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason   
  2. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson   
  3. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir   
  4. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson   
  5. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson   
  6. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason   
  7. Hvítidauði - Ragnar Jónasson   
  8. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.   
  9. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson   
  10. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason   
  11. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson   
  12. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring   
  13. Kokkáll - Dóri DNA   
  14. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir   
  15. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir   
  16. Saknað: íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall   
  17. Léttir réttir Frikka  - Friðrik Dór Jónsson   
  18. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal   
  19. Aðventa - Stefán Máni   
  20. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal   

     

Íslensk skáldverk    

  1. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason   
  2. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir   
  3. Hvítidauði - Ragnar Jónasson   
  4. Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson   
  5. Kokkáll - Dóri DNA   
  6. Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir   
  7. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir   
  8. Aðventa - Stefán Máni   
  9. Svínshöfuð - Bergþóra Snæbjörnsdóttir   
  10. Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir   
  11. Delluferðin - Sigrún Pálsdóttir   
  12. Stelpur sem ljúga - Eva Björg Ægisdóttir   
  13. Boðorðin - Óskar Guðmundsson   
  14. Staða pundsins - Bragi Ólafsson   
  15. Korngult hár, grá augu - Sjón   
  16. Selta, apókrýfa úr ævi landlæknis - Sölvi Björn Sigurðsson   
  17. Vetrargulrætur - Ragna Sigurðardóttir   
  18. Urðarköttur - Ármann Jakobsson   
  19. Tími til að tengja - Bjarni Hafþór Helgason   
  20. Þögla barnið - Guðmundur Brynjólfsson   

      

Þýdd skáldverk    

  1. Jólasysturnar - Sarah Morgan   
  2. Hnífur - Jo Nesbø   
  3. Ströndin endalausa - Jenny Colgan   
  4. Það er fylgst með þér - Mary Higgins Clark   
  5. Glæpur við fæðingu - Trevor Noah   
  6. Þú og ég og allt hitt - Catherine Isaac   
  7. Stóri maðurinn  - Phoebe Locke   
  8. Gullbúrið - Camilla Läckberg   
  9. Endurfundirnir  - Viveca Sten og Camilla Sten   
  10. Þú - Caroline Kepnes   

      

Ljóð & limrur    

  1. Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði   
  2. Heimskaut - Gerður Kristný   
  3. Leðurjakkaveður - Fríða Ísberg   
  4. Til í að vera til - Þórarinn Eldjárn   
  5. Dimmumót - Steinunn Sigurðardóttir   
  6. Til þeirra er málið varðar - Einar Már Guðmundsson   
  7. Gangverk - Þorvaldur S. Helgason   
  8. Edda - Harpa Rún Kristjánsdóttir   
  9. Úr landsuðri og fleiri kvæði - Jón Helgason   
  10. Mislæg gatnamót - Þórdís Gísladóttir   

    

Barnabækur - ljóð og skáldverk

  1. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson   
  2. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson   
  3. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.   
  4. Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason   
  5. Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal   
  6. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal   
  7. Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi  - Jeff Kinney   
  8. Jólasyrpa 2019 - Walt Disney    
  9. Slæmur pabbi - David Walliams   
  10. Stúfur hættir að vera jólasveinn - Eva Rún Þorgeirsdóttir   

     

Barnafræði- og handbækur     

  1. Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring   
  2. Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir   
  3. Fimmaurabrandarar - Fimmaurabrandarafjelagið   
  4. Jólaföndur – Unga ástin mín
  5. Spurningabókin 2019 - Guðjón Ingi Eiríksson   
  6. Ég elska einhyrninga – Unga ástinmín
  7. Fótboltaspurningar 2019 - Bjarni Þór Guðjónsson og Guðjón Ingi Eiríksson   
  8. Hvað segja dýrin? – Sögur útgáfa
  9. Hvolpasveitin - Fyrsta púslbók - Bókabeitan   
  10. Hvolpasveitin - Leitið og finnið - Bókabeitan

 

Ungmennabækur    

  1. Nornin - Hildur Knútsdóttir   
  2. Fjallaverksmiðja Íslands - Kristín Helga Gunnarsdóttir   
  3. Ungfrú fótbolti - Brynhildur Þórarinsdóttir   
  4. Ég er svikari - Sif Sigmarsdóttir   
  5. Dulmálsmeistarinn - Bobbie Peers   
  6. Vargöld 2 - Þórhallur Arnórsson og Jón Páll Halldórsson   
  7. Þrettán - Friðrik Erlingsson   
  8. Hin ódauðu - Johan Egerkrans   
  9. Villueyjar - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir   
  10. Hvísl hrafnanna 3 - Malene Sölvsten   

      

Fræði og almennt efni     

  1. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson   
  2. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason   
  3. Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson   
  4. Saknað - íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall   
  5. Léttir réttir Frikka  - Friðrik Dór Jónsson   
  6. Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson   
  7. Halaveðrið mikla - Steinar J. Lúðvíksson   
  8. Í eldhúsi Evu - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir   
  9. Fjarþjálfun - Indíana Nanna Jóhannsdóttir   
  10. Hárbókin - Theodóra Mjöll Skúla   

      

Ævisögur      

  1. Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason   
  2. Bréf til mömmu - Mikael Torfason   
  3. Jakobína saga skálds og konu - Sigríður K. Þorgrímsdóttir   
  4. Óstýrláta mamma mín … og ég - Sæunn Kjartansdóttir    
  5. Gústi - alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn - Sigurður Ægisson   
  6. Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein   
  7. Halldór Ásgrímsson ævisaga - Guðjón Friðriksson   
  8. Með sigg á sálinni - Einar Kárason   
  9. Systa - bernskunnar vegna - Vigdís Grímsdóttir   
  10. HKL ástarsaga - Pétur Gunnarsson   

 

Uppsafnað frá áramótum      

  1. Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon   
  2. Tregasteinn - Arnaldur Indriðason   
  3. Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson   
  4. Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason   
  5. Þögn - Yrsa Sigurðardóttir   
  6. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.   
  7. Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson   
  8. Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson   
  9. Hvítidauði - Ragnar Jónasson   

10.  Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×