Handbolti

Glæsimark Óðins Þórs mark umferðarinnar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Flinkur kappi
Flinkur kappi mynd/gog
Íslenski hægri hornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson minnti enn einu sinni á sig með mögnuðum tilþrifum í Meistaradeild Evrópu í handbolta í vikunni sem leið.

Óðinn Þór skoraði stórglæsilegt mark en var þó í tapliði þar sem lið hans, GOG, beið lægri hlut fyrir Wisla Plock í Póllandi 27-24.

Mark Óðins var valið flottasta mark umferðarinnar en á myndbandinu hér neðst í fréttinni má sjá fimm flottustu mörkin í umferðinni. Með Óðni á topp 5 listanum eru meðal annars Dean Bombac og Rune Dahmke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×