Bílar

Tesla kynnir pallbíl

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Elon Musk segir að engar myndir af Cybertruck sem finna má á netinu séu nálægt því sem raunverulega verður.
Elon Musk segir að engar myndir af Cybertruck sem finna má á netinu séu nálægt því sem raunverulega verður. Getty/Justin Sullivan
Elon Musk, framkvæmdastjóri bandaríksa rafbílaframleiðandas Tesla hefur sagt að pallbíll verði kynntur 21. nóvember næstkomandi. Pallbíllinn hefur fengið vinnuheitið Cybertruck.

Musk sagði á Twitter að bíllinn yrði kynntur á viðburði skammt frá höfuðstöðvum Space X í Los Angeles 21. nóvember næstkomandi. Musk vísaði til kvikmyndarinnar Blade Runner (þeirrar upprunalegu) og sagði að dagsetningin væri kunnuleg. Á þessum tíma fer einnig fram bílasýning í Los Angeles. Timasetningin er því sennilega engin tilviljun.

Lítið er þó vitað um pallbílinn. Musk hefu haldið því fram að hann verði svipaður að stærð og Ford F-150, muni kosta minna en 6.220.000 krónur (50.000 dollara) og verði betri en allir keppinautar sínir.

Þegar kemur að hönnun er Cybertruck pallbíllinn ekkert eins og þær myndir sem sést hafa á Internetinu að sögn Musk.

Pallbílar eru mest seldu bílarnir í Norður-Ameríku. Það gæti því verið stór markaður fyrir rafpallbíla sem lítið hefur verið sinnt hingað til. Ford seldi meira en 900.000 F-pallbíla á síðasta ári. Sem gerir þá að mest seldu bílum Bandaríkjanna á síðast ári. Ford ætlar sér að setja rafdrifna útgáfu af F-150 á markað fyrir 2022.


Tengdar fréttir

Musk borar inn í heila

NeuraLink, fyrirtæki í eigu Elons Musk, kynnti afrakstur vinnu sinnar að því að tengja mannsheilann við tölvur og gervigreind. Óttast komandi yfirburði gervigreindar og vilja skapa ofurgreind með samlífi manns og gervigreindar. 

Tesla fær að smíða bíla í Kína

Tesla hefur fengið grænt ljós á að smíða bíla í Kína. Framleiðandinn ætlar að reisa verksmiðju í austurhluta Sjanghæ. Verksmiðjan mun heita Gigafactory 3 eða Gígaverksmiðja 3. Hinar tvær eru Nevada og New York í Bandaríkjunum.

Tesla Model S tókst á við Nürburgring

Tesla varði síðustu viku á hinni víðfrægu Nürburgring braut. Framleiðendur nota brautina gjarnan til að bera saman getu sinna nýjustu afurða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×