Viðskipti innlent

Dulles-flugvöllur segist ekkert hafa heyrt í Ballarin síðan í ágúst

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fulltrúar Dulles-flugvallar funduðu með aðstandendum hins nýja WOW air í ágúst. Síðan hafa þeir ekkert heyrt neitt í flugfélaginu.
Fulltrúar Dulles-flugvallar funduðu með aðstandendum hins nýja WOW air í ágúst. Síðan hafa þeir ekkert heyrt neitt í flugfélaginu. Getty/narvikk
Hópurinn sem vinnur að endurreisn WOW air hefur ekki verið í neinum samskiptum við Dulles-flugvöll í Washington frá því í ágúst síðastliðnum. Aðstandendur flugfélagsins hafa lýst því yfir að jómfrúarflugið, sem er fyrirhugað síðar í þessum mánuði, verði milli Keflavíkur og umrædds Dulles-flugvallar.

Þetta segir Christina Saull, talsmaður flugvallarins, í samskiptum við Vísi. Engar flugferðir á vegum WOW séu fyrirhugaðar um völlinn - „eða aðrar, nýjar áætlanaferðir sem vert er að greina frá,“ eins og Saull kemst að orði.

Michele Ballarin, stjórnarformaður US Aerospace Associates LLC, og aðrir sem koma að endurreisn WOW air hafa verið nokkuð afdráttarlaus í svörum sínum, allt frá blaðamannafundi hennar á Hótel Sögu í septemberbyrjun: Jómfrúarflugið WOW air verður milli Dulles-flugvallar og Keflavík í október. Upphaflega verði stuðst við bandarískt flugrekstrarleyfi en stefnt á að útvega íslenskt leyfi þegar fram líða stundir.

Sjá einnig: Óbreytt áform um jómfrúarflug í október

Talsmaður Ballarin, lögmaðurinn Páll Ágúst Pálsson, sagði síðast í samtali við fréttastofu í dag að það væri „algjörlega“ ætlunin að fljúga í október. Stefnt væri að því að hægt yrði að bóka ferð með félaginu „sem allra fyrst.“

Ágústfundur og ekkert meir

Talsmaður Dulles-flugvallar segir að Ballarin og samstarfsmenn hennar hafi fundað með fulltrúum flugvallarins í ágúst síðastliðnum, með það fyrir augum að hefja áætlunarflug um völlinn. Það sé hefðbundið og varla fréttnæmt þegar slíkir fundir eiga sér stað milli flugvallarstjórnendanna og áhugasamra flugrekenda.

Aftur á móti hafa stjórnendur Dulles-vallar ekki heyrt neitt frá Ballarin eða hennar fólki frá þessi fundur átti sér stað. „Við höfum ekki fundað með henni síðan þá eða átt í nokkrum öðrum samskiptum við hana,“ segir Saull.

Fyrrnefndur Páll Ágúst viðurkennir að ferlið við endurreisnina gangi hægar en vonast var til.

„Það er allt á réttri leið og við höldum þeirri vegferð sem við byrjuðum á. Því miður erum við kannski ekki á nákvæmlega réttum hraða á öllum þeim stöðum sem við viljum vera á en við erum svo sannarlega á réttri leið,“ segir Páll Ágúst.


Tengdar fréttir

Verðhugmyndir Ballarin og Ernis gjörólíkar

Michele Ballarin falaðist eftir því að kaupa flugfélagið Erni í aðdraganda blaðamannafundarins sem hún hélt á Hótel Sögu í upphafi mánaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×