Erlent

Fjórir drukknuðu eftir sjálfu­mynda­töku

Atli Ísleifsson skrifar
Mikið er um stíflur og uppistöðulón í Tamil Nadu héraði, syðst á Indlandi.
Mikið er um stíflur og uppistöðulón í Tamil Nadu héraði, syðst á Indlandi. Getty
Nýgift kona og þrír fjölskyldumeðlimir hennar drukknuðu þegar fólkið var að taka sjálfu, eða selfie, út í miðju uppistöðulóni á Indlandi á dögunum.

Sex voru í hópnum sem kom saman til brúðkaupsmyndatökunnar og þegar einn þeirra, fjórtán ára drengur, rann til og féll í lónið togaði hann fjóra aðra með sér út í vatnið – átján og nítján ára systur sínar, ásamt brúðinni og systur brúðgumans.

Þau drukknuðu öll en brúðgumanum tókst að bjarga systur sinni, að því er fram kemur í frétt BBC.

Svokölluð sjálfu-dauðsföll eru talin algengust á Indlandi en þar voru 259 slík tilfelli skráð á árunum 2011 til 2017. Þar á eftir koma Rússland og Pakistan, samkvæmt nýlegri rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×