Selfoss missir annan lykilmann í krossbandsslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. september 2019 08:15 Sverrir Pálsson í vörn Selfossliðsins á síðustu leiktíð. Vísir/Bára
Sverrir Pálsson verður ekki með Íslandsmeisturum Selfoss í Olís deild karla í vetur og er þetta mikið áfall fyrir meistarana sem hafa þegar misst þjálfara sinn og besta leikmann. Sverrir Pálsson sleit krossband á Opna Norðlenska mótinu á Akureyri á dögunum. Sunnlenska sagði frá þessu og Íþróttadeild fékk þetta líka staðfest hjá aðstoðarþjálfara Selfossliðins, Erni Þrastarsyni. Sverrir Pálsson var ein af stjörnum Selfossliðsins síðasta vetur en hann stóð sig frábærlega í vörn liðsins og þá sérstaklega í úrslitakeppninni. Sverrir er annar sterkur leikmaður Selfossliðsins með slitið krossband því skyttan Einar Sverrisson reif krossband í mars og er enn að jafna sig af þeim meiðslum. Einar ætti þó að geta spilað með Selfossliðinu eftir áramót ef endurhæfingin gengur vel. Það mun því reyna mikið á Grím Hergeirsson, nýjan þjálfara Selfossliðsins, að fylla í skörð Sverris Pálssonar og Elvars Arnar Jónssonar í miðri vörn liðsins. Þessir tveir voru margra manna maki í vörn liðsins á síðustu leiktíð og verður sárt saknað.
Olís-deild karla Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Sjá meira