Viðskipti innlent

Ræðir lokun Ostabúðarinnar: „Ég ætla ekki að drepa mig á þessu“

Birgir Olgeirsson skrifar
Jóhann Jónsson, eigandi Ostabúðarinnar.
Jóhann Jónsson, eigandi Ostabúðarinnar. FBL/Anton
Jóhann Jónsson, eigandi Ostabúðarinnar, mætti í Bítið á Bylgjunni í morgun til að fara yfir ástæður þess að hann ákvað að loka veitingastaðnum sínum sem hann hefur rekið til fjölda ára á Skólavörðustíg.

Hann sagði rekstrarkostnað staðarins hafa farið upp úr öllu valdi og nefndi þar sérstaklega launakostnaðinn. Sagðist hann ekki geta kvartað undan leiguverði á sínum stað en sagði að kokkar og þjónar á staðnum væru með um 380 þúsund til 420 þúsund krónur útborgaðar beint í vasann. Hann þurfi svo að greiða annað eins í launatengd gjöld.

Þegar mest var, var Jóhann með átján manns í vinnu enda með tvöfalda vakt á sínum veitingastað.

„Sorglegt að hlusta á þennan mann“

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdaráðs Sósíalistaflokksins, hafði mætt í Bítið í vikunni til að ræða þrönga stöðu veitingastaða í miðborg Reykjavíkur. Sagði Gunnar Smári að margir staðir hefðu gert mistök með því að lengja opnunartímann en Jóhann sagði í Bítinu í morgun að staðurinn hefði vissulega verið með tvöfalda vakt.

Sagðist Jóhann ekki skilja hvað Gunnar Smári hefði verið að fara með ummælum sínum og nefndi að Gunnar Smára hefði sjálfum ekki gengið rosalega vel þegar hann starfaði við útgáfu dagblaða.

Hér fyrir neðan má heyra viðtalið við Gunnar Smára:

„Þetta er ekki svona einfalt og það er rosalega sorglegt að hlusta á þennan mann gaspra í útvarpi um eitthvað sem hann hefur ekki vit á,“ sagði Jóhann. Minntist Jóhann á að Gunnar Smári hefði hefði sagt að litlir veitingastaðir ættu að vera reknir af fjölskyldum og eigendur ættu að vera í eldhúsinu en Jóhann gaf ekki mikið fyrir þau ummæli og sagði að hann og hans fólk þyrfti að eiga líf líka.

„Ég man ekki hvenær hann kom inn í eldhúsið eða skrifstofuna. Hann hefur ekki hugmynd um hvað hann er að tala þess maður,“ sagði Jóhann.

Vaxtatækifæri blöstu við

Sagði Jóhann að það hefði verið að hreinu að ákveðin vaxtatækifæri blöstu við atvinnurekendum í þeim mikla uppgangi sem var í kringum árið 2015. Það var einmitt þá sem hann ákvað að stækka rekstur staðarins, það er að lengja opnunartímann. Árin 2015 og 2016 voru frábær í rekstri sagði Jóhann en árið 2017 fór reksturinn að þyngjast og var árið 2018 sérstaklega erfitt.

Það rakti Jóhann sérstaklega til erfiðleika í rekstri WOW air og benti á að kjaraviðræður, sem stóðu yfir í fleiri mánuði hefðu gert atvinnurekendum afar erfitt fyrir því það skapaði mikið óvissutímabil þar sem bankastofnanir héldu að sér höndum.



Of margir veitingastaðir

Jóhann nefndi einnig að rekstrarumhverfi í miðborg Reykjavíkur sé sérstaklega erfitt því mörgum sé hleypt inn á markaðinn. Í miðborginni séu ekki aðeins fjöldi veitingastaða heldur einnig fjöldi matarvagna.

Ostabúðin hafði verið rekin á Skólavörðustíg til fjölda ára.FBL/Sigtryggur Ari
„Það er ekki markaður fyrir allan þennan hóp,“ sagði Jóhann og taldi að það væru um 35 þúsund sæti fyrir matargesti í miðborginni. Úti á Granda eru þau orðin tólf til þrettán hundruð talsins.

Hann segist hafa tapað gríðarlegum peningum síðasta vetur og miðað við hvernig ástandið sé í dag hafi þetta verið góður tímapunktur til að loka.

Erfið staða fyrir lítil fyrirtæki

Sagðist Jóhann hafa fengið fjölda tilboða undanfarna daga og hafa margir sett sig í samband við hann til að votta honum samúð. Hann sagði hjarta sitt vera á Skólavörðustígnum þegar hann var spurður hvort hann væri með einhver framtíðarplön en sagði að ríkisvaldið og sveitarfélögin þyrftu að fara að taka til hjá sér.

Stoppi þurfi útblástur veitingastaða og einnig þurfi að endurskoða skattstofna því að rekstur lítilla og meðalstórra fyrirtækja sé orðinn afar þungur.

„Þetta er bara vonlaust,“ sagði Jóhann.

Ef staðurinn átti að reka sig hefði hann þurft að hækka verð um 15 til 20 prósent. Það hefði þýtt fækkun viðskiptavina en Jóhann segir fáa fara út í rekstur án þess að ætla sér að skila hagnaði.

„Annars gæti ég bara verið launþegi,“ sagði Jóhann sem benti á að það sé ekkert grín að reka veitingahús í dag.

„Svo er maður að elda sjálfur og ég ætla ekki að drepa mig á þessu.“

Hér fyrir neðan má heyra viðtalið við Jóhann


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×