Viðskipti erlent

Róbert Wessman í stjórn japansks lyfjafyrirtækis

Andri Eysteinsson skrifar
Róbert Wessman á hluthafafundi FujiPharma í Tókíó í vikunni.
Róbert Wessman á hluthafafundi FujiPharma í Tókíó í vikunni. Mynd/Alvogen
Róbert Wessman, forstjóri Alvogen og stjórnarformaður Alvotech, var í vikunni kjörinn í stjórn japanska lyfjafyrirtækisins Fuji Pharma en japanska fyrirtækið á 4,2% hlut í Alvotech. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alvogen.

Róbert segir það spennandi verkefni að setjast í stjórn Fuji Pharma. „Það er ánægjulegt að fá tækifæri til þess að setjast í stjórn fyrirtækisins og styðja þannig enn frekar við samstarf okkar. Fyrir Alvotech eru það talsverð tíðindi að japanskt lyfjafyrirtæki sjái tækifæri í að fjárfesta í íslensku líftæknifyrirtæki og treysta okkur fyrir þróun og framleiðslu lyfjanna fyrir japansmarkað. Við erum þakklát fyrir það traust og með stjórnarsetu minni hjá Fuji Pharma munu hagsmunir fyrirtækjanna tengjast enn frekar,“ segir Róbert.

Alvotech og Fuji hafa undanfarið átt í miklu samstarfi um markaðssetningu líftæknilyfja Alvotech í Japan. Fyrr á árinu fjárfesti Fuji Pharma í Alvotech fyrir um 50 milljónir Bandaríkjadala en fyrirtækið er skráð í kauphöllina í Tókíó.

Þá fjárfesti Alvogen nýlega í Fuji Pharma og er nú þriðji stærsti hluthafi fyrirtækisins í gegnum dótturfyrirtæki sitt í Taiwan, með um 4% eignarhlut.

Ný stjórn fyrirtækisins, með Róbert Wessman innanborðs var kynnt á hluthafafundi fyrirtækisins í Tókíó í vikunni


Tengdar fréttir

Alvotech leitar að hundrað vísindamönnum

Lyfjafyrirtækið Alvotech tilkynnti nýlega að það hyggðist ráða 100 vísindamenn og sérfræðinga til starfa á Íslandi. Störfin hafa nú verið auglýst til umsóknar og er um að ræða fjölbreytt störf hjá fyrirtækinu sem hefur verið í miklum vexti undanfarin ár.

Seldu skuldabréf fyrir 36 milljarða

Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur tryggt sér fjármögnun upp á 300 milljónir dala, jafnvirði ríflega 36 milljarða króna, með sölu á skuldabréfum til fjárfesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×