Seldu skuldabréf fyrir 36 milljarða Kristinn Ingi Jónsson skrifar 23. janúar 2019 06:15 Róbert Wessman, stofnandi Alvotech Vísir/eyþór
Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur tryggt sér fjármögnun upp á 300 milljónir dala, jafnvirði ríflega 36 milljarða króna, með sölu á skuldabréfum til fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir til þess að knýja áframhaldandi vöxt, endurfjármagna skuldir og þróa áfram líftæknilyf, að því er segir í fréttatilkynningu. Eigendur skuldabréfanna munu jafnframt geta breytt bréfunum í hlutafé þegar Alvogen verður skráð á hlutabréfamarkað. CLSA, dótturfélag CITIC Securities, stærsta fjárfestingarbanka Kína, var helsti söluráðgjafinn í skuldabréfaútboðinu og þá var stórbankinn Morgan Stanley aðalfjárfestirinn. Íslenska verðbréfafyrirtækið Arctica Finance veitti auk þess Alvotech ráðgjöf. Sem kunnugt er keypti japanska lyfjafyrirtækið Fuji Pharma 4,2 prósenta hlut í íslenska líftæknifélaginu í síðasta mánuði og nam kaupverðið um 50 milljónum dala. Áður höfðu félögin tilkynnt um samstarf sín á milli sem gerir Alvotech kleift að þróa og framleiða tæknilyf fyrir Japansmarkað.
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira