Innlent

Tveir stórir skjálftar norður af Siglufirði

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Skjálftarnir eru átta kílómetrum norðar en skjálftahrinan sem varð á miðvikudag.
Skjálftarnir eru átta kílómetrum norðar en skjálftahrinan sem varð á miðvikudag. Veðurstofa Íslands
Tveir jarðskjálftar af stærðinni þrír koma tveir mældust tæpum þrjátíu kílómetrum norður af Siglufirði um klukkan sex í morgun.

Skjálftarnir nú eru átta kílómetrum norðar en skjálftahrinan sem varð á miðvikudag.

Sjá nánar: Snarpur jarðskjálfti norðan við Siglufjörð

Um tugur eftirskjálfta hefur mælst. Sá öflugasti tveir komma sjö að stærð.

Engar tilkynningar hafa borist um að jarðskjálftarnir hafi fundist í byggð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×