Viðskipti innlent

Tjón ALC vegna kyrr­setningar á annað hundrað milljónir króna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vél ALC sem WOW air hafði á leigu og Isavia kyrrsetti vegna skulda flugfélagsins fór af landi brott í morgun.
Vél ALC sem WOW air hafði á leigu og Isavia kyrrsetti vegna skulda flugfélagsins fór af landi brott í morgun. vísir/vilhelm
Flugvél ALC sem fór af landi brott í morgun er stefnt til Ljubljana í Slóveníu þar sem leigufélagið er með aðstöðu til að vera með þotur í viðhaldi. Þar verður hún útbúin fyrir næsta verkefni að sögn Odds Ástráðssonar lögmanns ALC.

Aðspurður hvort búið sé að leigja vélina út segist hann ekki vita til þess að búið sé að ganga endanlega frá því hvert næsta verkefni verður.

Hins vegar hafi verið búið að leigja hana út á sínum tíma og semja um það við WOW air áður en flugfélagið fór í gjaldþrot að þotan færi í annað verkefni.

„En það þurfti að vinda ofan af þeim samningum þar sem það var óvissa um það hvenær þotan yrði laus,“ segir Oddur.

„Isavia þarf að endurskoða sín vinnubrögð“

Hann segir næstu skref í málinu hvað varðar ALC vera þau að taka utan um það hvert tjón félagsins er vegna þvingunaraðgerða Isavia.

„Og eftir atvikum taka ákvörðun um að sækja það tjón í skaðabótamáli gegn Isavia.“

Oddur segir ekki liggja fyrir endanleg samantekt á því hvað tjónið er en miðað við þær forsendur sem núna liggja fyrir virðist það vera vel á annað hundrað milljónir króna.

Það er umtalsvert hærri fjárhæð en sú sem ALC þurfti að greiða Isavia samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjaness en það voru 87 milljónir króna.

Spurður út í fordæmisgildi þessa máls segir Oddur að í sínum huga sé að minnsta kosti tvennt alveg ljóst.

„Það er í fyrsta lagi að Isavia þarf að endurskoða sín vinnubrögð. Í öðru lagi það að íslensk stjórnvöld og löggjafinn þurfa að taka til endurskoðunar þær heimildir sem Isavia hefur til að þvinga fram greiðslu á notendagjöldum, bæði hvað varðar umfang þeirra og til hverra þær taka og hvernig þeim skuli beitt, og þó fyrr hefði verið,“ segir Oddur.






Tengdar fréttir

Héraðsdómur úrskurðar ALC í hag

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í dag í máli bandaríska leigufélagsins ALC gegn Isavia. Niðurstaða Héraðsdóms var sú að Isavia hafi einungis verið heimilt að kyrrsetja þotuna TF-GPA, sem ALC hafði leigt til WOW air, vegna skulda sem hvíldu á þotunni, en ekki vegna heildarskulda WOW air við Isavia.

Isavia afhendir ALC vélina og fjarlægir vinnuvélar

Isavia hefur samþykkt að láta Airbus farþegaþotu bandarísku flugvélaleigunnar ALC af hendi í samræmi við úrskurð héraðsdóms í gær. Lögmaður ALC segir stefnt að því að fljúga vélinni af landi brott strax á morgun.

Þota ALC farin af landi brott

Þotan sem Isavia kyrrsetti í mars og hefur verið miðpunktur dómsmála síðustu mánuði yfirgaf Keflavíkurflugvöll í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×