Fyrrverandi bæjarstjóri sakar eftirmann um að hnýsast í einkabréf Ari Brynjólfsson skrifar 7. júní 2019 08:45 Frá Seyðisfirði fréttablaðið/stefán
Fyrrverandi bæjarstjóri Seyðisfjarðar sakaði núverandi bæjarstjóra um að hnýsast í einkabréf sín. Kvörtun Vilhjálms Jónssonar, oddvita B-lista á Seyðisfirði, var tekin fyrir á síðasta bæjarráðsfundi. Hann sakar Aðalheiði Borgþórsdóttur bæjarstjóra um að hafa hnýst í einkabréf. Fram kemur í bókun bæjarstjóra að bréfið hafi verið stílað á Seyðisfjarðarkaupstað en hafi átt að berast til Vilhjálms sem lét af störfum sem bæjarstjóri í október í fyrra. Enn berast bréf frá hinum ýmsu stofnunum og félagasamtökum til bæjarstjóra sem eru merkt Vilhjálmi. Mun starfsmaður kaupstaðarins ekki hafa áttað sig á að bréfið, sem var frá Skipulagsstofnun, hefði verið ætlað Vilhjálmi persónulega. „Þetta var hreint og klárt óviljaverk. Um leið og það var ljóst að þetta átti ekki að opnast var bréfinu fargað og sendandinn beðinn um að leiðrétta sín mistök. Þetta er ekkert eins og hann er að gefa í skyn í kvörtun sinni, að bæjarstjóri hafi vísvitandi verið að hnýsast í hans einkapóst. Það er bara þvæla,“ segir Rúnar Gunnarsson, formaður bæjarráðs Seyðisfjarðar. Mun starfsmaður Skipulagsstofnunar hafa talið Vilhjálm vera að vinna verk fyrir hönd kaupstaðarins. Hann sendi Vilhjálmi síðan leiðrétt bréf ásamt afriti til kaupstaðarins. Ekki náðist í Vilhjálm.
Birtist í Fréttablaðinu Seyðisfjörður Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira