Weekday opnuð á Íslandi Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar 21. maí 2019 11:00 Viktor Weisshappel og Sigurður Oddsson starfa báðir saman á auglýsingastofunni Jónsson & Le'macks.
Fyrsta útibú tískufatabúðarinnar Weekday verður opnað á fimmtudaginn. Verslunin er í Smáralind. Hönnuðirnir Sigurður Oddsson og Viktor Weisshappel voru fengnir til að hanna boli í tilefni af opnuninni. Það er vafalaust nokkur tilhlökkun meðal íslenskra tískuspekúlanta yfir opnuninni, enda þessi frábæra viðbót í íslensku tískuflóruna okkur mikið happ. Weekday er starfrækt í níu löndum, en fyrsta búðin hét Weekend, eða Helgi. Hún var stofnuð árið 2000, en þegar á leið var ákveðið að breyta nafninu í Weekday þar sem vinsældirnar ollu því að lengja varð opnunartímann yfir á virka daga.Hönnun Sigurðar er að hluta til innblásin af keltneskum hnútum.Fötin frá Weekday eiga það flest sameiginlegt að vera stílhrein og fáguð. Weekday fylgir þó að mestu hugmyndafræði flestra búðanna innan Hennes & Mauritz samsteypunnar sem er að halda verðinu sem hagstæðustu. Samsteypan rekur einnig verslanirnar H&M, Other stories, Monki og COS. Þær tvær síðastnefndu opna einnig útibú á Íslandi á fimmtudaginn, Monki í Smáralind og COS við Hafnartorg. Það er því ljóst að eigendur Hennes & Mauritz hljóta að vera sáttir við afkomu, gengi og viðtökur þeirra þriggja H&M verslana sem fyrirtækið hefur nú þegar opnað á landinu. Í tilefni af opnuninni voru grafísku hönnuðirnir Sigurður Oddsson og Viktor Weisshappel fengnir í samstarf með keðjunni. Þegar nýtt útibú Weekday er opnað eru fengnir hönnuðir frá því landi, borg eða bæ sem búðin er staðsett í til að gera prent fyrir stuttermaboli. Íslenska veðrið spilar stærsta hlutverkið í hönnuninni á bolum Viktors.Inni í búðinni í Smáralind er sérstakt prentstúdíó þar sem viðskiptavinir geta fengið hönnun þeirra Sigurðar og Viktors á flíkur úr búðinni sem hægt er að prenta á. Það er algjör nýjung hérlendis að hafa slíkt stúdíó í tískufataverslun. Flíkur Weekday henta margar vel í slíka prentun, þar sem sniðin og útlitið er oft einfalt og klassískt. Hönnun Sigurðar og Viktors er einungis til sölu yfir opnunarhelgina, en það er í kortunum að hafa prentnámskeið síðar meir þar sem stúdíóið verður notað. „Bolurinn minn heitir Anda, eins og í andaðu djúpt, en vekur einnig upp hugsanir um andann. Þessi tvöfalda túlkun var hugsuð til að fá fólk til að taka sér smástund og anda djúpt. Að það leyfi sér að lifa í nú-inu“ segir Sigurður. Hann hefur starfað sem grafískur hönnuður og listrænn stjórnandi í um áratug.Weekday vinnur oft með einföld og klassísk snið. Mynd/WeekdaySigurður og Viktor voru beðnir um að hafa skírskotun í hönnun sinni. „Leturgerðin er fléttuð og flæðandi, innblásin af keltneskum hnútum og „art nouveau“, en mér finnst báðir stílar tengjast náttúrunni sterkum böndum,“ segir Sigurður og bætir við: „Ég vona að þegar fólk sér bolinn að þá taki það sér smá stund og andi djúpt að sér.“ Bolirnir hans Viktors eru innblásnir af íslenska veðrinu og kallast: Sea of fun and the damn cloud. „Íslendingar tala mikið um veðrið. Það breytist hratt og er mjög óútreiknanlegt. Það er vægt til orða tekið að segja að veðurfarið hafi gífurleg áhrif á skaplyndi og líðan fólks,“ segir Viktor. Hann starfar á auglýsingastofunni Jónsson & Le'macks ásamt Sigurði. Hann var meðal annars einn þeirra sem hannaði fyrir Útmeða herferð Geðhjálpar. „Á sumrin er bjart alla nóttina og á veturna er dimmt yfir daginn. Mín hönnun var innblásin af þessum tveimur ólíku pólum,“ bætir hann við að lokum. Verslunin Weekday er í Smáralind Kópavogi og verður opnuð klukkan ellefu á fimmtudaginn. Fyrstu 100 gestirnir fá 40% afslátt af vörum verslunarinnar, en það er 20% afsláttur allan daginn. Plötusnúðar halda uppi stuðinu og gjafapokar verða í boði á meðan birgðir endast. Síðar um kvöldið verður sérstakt Weekday-partí á skemmtistaðnum Prikinu í Ingólfsstræti. Fram koma GDRN, Auður og DJ Karítas og þar verða einnig gjafapokar fyrir fyrstu gestina.
Birtist í Fréttablaðinu Kópavogur Tíska og hönnun Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Fleiri fréttir Ísland að detta úr tísku Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Sjá meira