Handbolti

Stórsigur Ragnars og félaga

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ragnar er að gera góða hluti og er kominn í þýsku úrvalsdeildina frá og með næsta sumri.
Ragnar er að gera góða hluti og er kominn í þýsku úrvalsdeildina frá og með næsta sumri. mynd/huttenberg
Hüttenberg valtaði yfir botnlið Rhein Vikings í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

Ragnar Jóhannsson skoraði tvö mörk í 36-24 stórsigri Hüttenberg. Gestirnir leiddu 11-20 í hálfleik.

Hüttenberg siglir mildan sjó um miðja deild en Rhein Vikings er aðeins komið með tvo sigra úr 35 leikjum í vetur og situr sem fastast á botninum.

Selfyssingurinn Ragnar er að spila sína síðustu leiki fyrir Hüttenberg en hann gengur til liðs við Bergischer í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×