Golf

Tiger Woods hittir Trump í Hvíta húsinu eftir helgi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods fagnar sigri á Mastersmótinu á dögunum.
Tiger Woods fagnar sigri á Mastersmótinu á dögunum. Getty/Andrew Redington
Kylfingurinn Tiger Woods verður heiðraður sérstaklega í Hvíta húsinu á mánudaginn kemur en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðið honum til sín í Washington.  

Tiger Woods tryggði sér sigur í Mastersmótinu í síðasta mánuði en það var fyrsti sigur hans á risamóti í golfi í tæp ellefu ár eða síðan 2008. Woods hefur alls unnið fimmtán risamót á ferli sínum.

Trump hefur ákveðið að Woods fái „Presidential Medal of Freedom“ orðuna sem væri hægt að kalla Friðarorðu forsetans en hún er líklegast svipuð og Fálkaorðan er á Íslandi. Þetta er því mikill heiður fyrir þennan frábæra kylfing.





Tiger Woods mun fá orðu sína afhenta í Rósagarði Hvíta hússins en aðeins sérstakir boðsgestir og blaðamenn fá að fylgjast með.

Tiger Woods var að vinna Mastersmótið í fimmta sinn á ferlinum en hann vann mótið síðast árið 2005.

Það hefur verið magnað að fylgjast með endurkomu Tiger Woods en um tíma var óvíst hvort að hann gæti spilað aftur golf vegna erfiðra bakmeiðsla. Hann lenti líka í vandamálum í einkalífinu en hefur sýnt mikla þrautsegju með að vinna sig til baka og komast aftur á toppinn þar sem hann var nánast einráður á sínum tíma.

Tiger Woods og Donald Trump Bandaríkjaforseti eru miklir félagar og hafa margoft spilað golf saman á einhverjum af golfvöllunum í eigu Trump.

Donald Trump óskaði Tiger strax til hamingju á Twitter eftir sigurinn á Mastersmótinu og daginn eftir sagðist hann ætla að veita honum „Presidential Medal of Freedom“ orðuna. Trump stóð við það en fyrsti forsetinn til að veita hana var John F. Kennedy árið 1963.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×