Skoðun

Kyrrsetning flugvélar varpar ljósi á ósanngirni í boði ríkisins

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Það er með ólíkindum að opinbert hlutafélag skuli hafa fengið heimild til að taka eigur annarra traustataki. Nú er svo komið að opinbera hlutafélagið, sem er í reynd ríkisstofnun, neitar að láta flugvél af hendi nema réttmætur eigandi greiði skuld sem hann stofnaði ekki til.

Isavia, sem rekur Flugstöð Leifs Eiríkssonar, kyrrsetti flugvél sem hið gjaldþrota WOW air hafði á leigu. Leigusalinn fær ekki vélina til baka nema hann greiði öll lendingargjöld sem flugfélagið skuldaði flugvellinum. Það eru tæpir tveir milljarðar króna.

Fram hefur komið í fjölmiðlum að það tíðkist að flugvellir taki veð í flugvélum fyrir ógreiddum lendingargjöldum sem rekja megi til vélanna. Það sé hins vegar fáheyrt að flugvellir taki veð í einstökum flugvélum fyrir öllum skuldum flugfélaga en Heathrow-flugvöllur hafi sama háttinn á.

Jafnvel þótt leikreglurnar liggi skýrt fyrir er flugvöllurinn að misnota yfirburði sína. Í öðrum rekstri kemst enginn upp með að haga sér með sama hætti, það er ekki hægt að taka veð í leiguíbúð vegna námslána leigutakans.

Þetta er ósanngjarnt gagnvart öðrum kröfuhöfum. Fari flugfélag í þrot eru kröfur flugvallar í raun rétthærri en kröfur allra annarra, til dæmis launakröfur starfsmanna flugfélagsins, og því skiptir það flugvöllinn litlu máli þótt flugfélög safni skuldum.

Flugvöllurinn hefur í raun hagsmuni af því að leyfa flugfélagi að safna skuldum í þeirri von að því takist að lokum að bjarga rekstrinum. Kröfur flugvallarins eru tryggðar. Setji flugvöllurinn flugfélaginu stólinn fyrir dyrnar kann það að hafa áhrif á fjölda farþega um völlinn.

Þetta fyrirkomulag ætti að leiða til þess að það er ekki jafn eftirsóknarvert fyrir leigusala og fjármálastofnanir að eiga viðskipti við flugfélög sem fljúga til Íslands og hlýtur að leiða til hærra verðs og/eða annarra kvaða til að skapa borð fyrir báru.

Það að reka flugvöll er hættuspil jafnvel þótt til staðar séu víðtækar heimildir til kyrrsetningar: 21 flugfélag hefur farið í gjaldþrot á undanförnum tólf mánuðum, samkvæmt samantekt veftímaritsins Skift.

Háar fjárhæðir eru bundnar í rekstri Leifsstöðvar og stefnt er að því að fjárfesta ríkulega í vellinum til að koma til móts við fjölgun ferðamanna. Því miður er hann alfarið í eigu ríkisins og því er verið að tefla djarft með fé skattborgara. Eðlilegast væri að selja flugvöllinn og láta fjárfesta bera áhættuna. Reynslan af opinberum framkvæmdum er slæm.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×