Meistararnir stöðvuðu heitasta liðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. mars 2019 07:30 Steph Curry í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Meistararnir í Golden State Warriors stöðvuðu sigurgöngu Houston Rockets í NBA-deildinni í nótt þegar liðin áttust við í Texas. Golden State vann tveggja stiga sigur, 106-104. Houston hafði unnið níu leiki í röð fyrir leikinn í nótt en Golden State hafði aðeins unnið fjóra af síðustu tíu leikjum sínum. Klay Thompson átti góðan leik fyrir Golden State en hann var með 30 stig og sex fráköst. Steph Curry var með 24 stig en þess má geta að Kevin Durant missti af leiknum í nótt vegna meiðsla. James Harden náði að skora 29 stig auk þess að gefa tíu stoðsendingar fyrir Houston en hann hitti illa í nótt og nýtti aðeins tvö af tólf þriggja stiga skotum sínum. Heimamenn náðu að minnka muninn niður í eitt stig á lokamínútunum en Golden State reyndist sterkari aðilinn í lokin. Golden State er á toppi vesturdeidlarinnar með 46 sigra en Houston er í fjórða sætinu með 42. Oklahoma City er svo í þriðja sætinu en liðið hafði betur gegn Brooklyn á heimavelli í nótt, 108-96. Russell Westbrook var með enn einu þreföldu tvennuna en hann var með 31 stig, tólf fráköst og ellefu stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Washington - Orlando 100-90 Oklahoma City - Brooklyn 108-96 Miami - Detroit 108-74 Atlanta - Memphis 132-111 Houston - Golden State 104-106 Phoenix - Utah 97-114
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira