Innlent

„Við eigum ekki að hleypa þessari umræðu í pólitískar skotgrafir“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á Alþingi í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á Alþingi í dag. vísir/vilhelm

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að taka eigi dóm Mannréttindadómstól Evrópu vegna skipanar dómara við Landsrétt alvarlega.

Alþingi og stjórnvöld eigi hins vegar líka að gefa sér tíma til þess að reifa dóminn, bæði niðurstöðuna og svo sjónarmið sem koma fram í minnihlutaáliti. Ekki eiga að hleypa umræðunni í pólitískar skotgrafir ef þingmönnum er alvara með því að vilja tryggja frið um réttarkerfið.

Þetta kom fram í máli Katrínar á Alþingi í dag þar sem hún flutti munnlega skýrslu um viðbrögð stjórnvalda við dómi MDE.

Meirihluti dómsins komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að skipan dómara bryti gegn 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu þar sem kveðið er á um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.

Landsréttur tók aftur til starfa í dag en dómarar við réttinn ákváðu að taka engin mál fyrir í síðustu viku eftir að dómur MDE féll. Þeir fjórir dómarar sem skipaðir voru þvert á lista hæfnisnefndar munu ekki starfa við réttinn að svo stöddu heldur aðeins þeir ellefu sem voru á lista nefndarinnar.

Tækifæri fyrir þingið að sýna hvað í því býr

Katrín lagði áherslu á það Alþingi og stjórnvöld gæfu sér tíma í málið. Markmiðið væri að eyða óvissunni og finna farsæla lausn.

„Ég held að við höfum ákveðið tækifæri sem þing að sýna hvað í okkur býr hvernig við tökumst á við þennan dóm,“ sagði Katrín og bætti við að hún ætlaði að óska eftir fundi með formönnum flokkanna á Alþingi til að fara betur yfir efni dómsins og þá valkosti sem eru upp.

Þá kom jafnframt fram í ræðu Katrínar að hún hefði skipað hóp sérfræðinga til þess að fara yfir málið með stjórnvöldum.

Í hópnum sitja þau Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélagsins, Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, Hjördís Hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttardómar, Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild HR, og Björg Thorarensen, prófessor í lögum við HÍ. Hefur hópurinn nú þegar fundað með fulltrúum ríkislögmanns og fulltrúum dómsmálaráðuneytisins og verður fundað áfram.

Sigríður hafi axlað pólitíska ábyrgð

Katrín sagði að Sigríður Á. Andersen hefði axlað pólitíska ábyrgð á málinu þegar hún sagði af sér í síðustu viku en fyrir liggur að eyða þarf óvissu varðandi starfsemi Landsréttar og ákveða hvort stjórnvöld vísi málinu til yfirdeildar MDE.

Ríkið hefur þrjá mánuði til þess að vísa málinu þangað. Katrín sagði skiptar skoðanir um það hvort bæri að vísa málinu til yfirdeildarinnar. Ákvörðun um hvort það verður gert mun ekki vera tekin fyrr en ítarlegt mat á þeim hagsmunum sem liggja undir í málinu hefur farið fram að sögn Katrínar.

Katrín sagði að sér þætti áhugavert að heyra þá umræðu að minnihlutaálitið hefði ekki vægi. Hún teldi þá skoðun ekki standast þar sem minnihlutaálit hefðu oft haft gríðarleg áhrif.

„Í mínum huga snýst þetta fyrst og fremst um að gera það sem er rétt. Það sem er rétt fyrir íslenskt samfélag og réttarkerfi og líka í alþjóðlegu samhengi. Við þurfum að tryggja eðlilegt umhverfi dómstólsins óháð því hvaða ákvörðun er tekin,“ sagði ráðherra.

Dómsmálaráðherra með til skoðunar hvort skipa eigi nýja dómara

Þá sagði Katrín mjög margar ólíkar skoðanir á því hversu víðtækar ályktanir ætti að draga af dómnum. Alþingi Íslendinga ætti ekki að bæta gráu ofan á svart með vanhugsuðum ráðstöfunum í þeim viðkvæma málaflokki sem dómskerfið er.

„Við eigum að taka úrskurðinn alvarlega en við eigum líka að gefa okkur svigrúm til að reifa hann, reifa sjónarmið dómsins, reifa sjónarmið í minnihlutaálitinu og við eigum ekki að hleypa þessari umræðu í pólitískar skotgrafir ef okkur er alvara með því að við viljum tryggja hér frið um réttarkerfið,“ sagði Katrín.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, kom upp í andsvörum og spurði ráðherra hvort það kæmi til greina að fara í það að skipa í stöður þeirra fjögurra dómara við Landsrétt sem ekki eru þar lengur að störfum vegna dóms MDE.

Katrín svaraði því til að þetta væri til skoðunar hjá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, dómsmálaráðherra.


Tengdar fréttir

Spyr hver ávinningurinn sé af áfrýjun á dómi MDE

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segir að full ástæða sé til að staldra við spyrja hver ávinningurinn sé af því að framlengja óvissu í Landsréttarmálinu. Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu hafi verið afdráttarlaus og vel rökstuddur. Verði dómum skotið til yfirdeildar gæti það tekið talsvert langan tíma.

Segir það vera sterk rök að dómur MDE sé byggður á pólitík

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að það sé full ástæða til að gefa minnihlutaáliti dóms MDE gaum. Honum finnst ekki rétt að sú krafa hafi verið gerð til Sigríðar Á. Andersen að segja af sér á grundvelli niðurstöðu MDE.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×