Handbolti

Basti svarar fyrir leik sinn: Farinn í átak

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
s2 sport
Það var glatt á hjalla í settinu í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld þegar farið var yfir leik FH og ÍR í Olísdeild karla og frammistöðu sérfræðingsins Sebastians Alexandersonar í marki ÍR.

Bjarni Fritzson kallaði á Sebastian til að koma til bjargar því ÍR-ingar voru í smá markvarðakrísu.

En átti hann að koma eitthvað við sögu í leiknum?

„Bara ef Stephen gæti ekki spilað. Og hann þurfti einhverja aðhlynningu og svo fékk hann tvær mínútur,“ svaraði Sebastian. Hann fékk því nokkrar mínútur í fyrri hálfleik.

Hann er með skráðan einn varðan bolta af sjö, en við nánari skoðun á upptökum af leiknum fór það skot líklega bara í stöngina. Hann allavega sjálfur segist ekki hafa varið bolta.

„Í fyrsta lagi, þá áttaði ég mig á því þegar ég var kominn í þennan búning og sá þessar klippur að ég er miklu feitari en ég hélt að ég væri svo ég er kominn í átak,“ sagði Sebastian.

„Númer tvö, það eru góðar fréttir fyrir deildina að einhver sem er ekki undirbúinn geti ekki komið og spilað.“

Tómas Þór Þórðarson, þáttarstjórnandi, þakkaði Bjarna Fritzsyni kærlega fyrir að hafa boðið þjóðinni upp á þessa skemmtun en spurði samt hvort það væri ekki svolítið bilað að ná í 49 ára gamlan mann.

„Ég get alveg sagt þér það að ef ég væri tíu kílóum léttari og væri búinn að mæta á nokkrar æfingar þá myndi ég alveg nenna að rífa kjaft, en þetta var ekki gott.“

Birkir Fannar Bragason var frábær í marki FH í seinni hálfleik og Sebastian vildi segja að það væri sér að þakka, því það sé ekkert sem hvetur hann áfram eins og að keppa við sig.

Klippa: Seinni bylgjan: Basti svarar fyrir leik sinn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×