Handbolti

Arnar Freyr frábær í Íslendingaslag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnar Freyr í leik með Kristianstad.
Arnar Freyr í leik með Kristianstad. vísir/getty
Arnar Freyr Arnarsson átti frábæran leik fyrir sænsku meistaranna í Kristianstad er þeir unnu fimm marka sigur, 32-27, á Sävehof á heimavelli.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan var 14-14 er liðin gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik voru heimamenn sterkari og sigurinn aldrei í hættu.

Arnar Freyr Arnarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk fyrir Kristianstad en hann var næst markahæstur á vellinum. Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú og Ólafur Guðmundsson gerði tvö.

Ágúst Elí Björgvinsson stóð í markinu hjá Sävehof sem er í sjöunda sæti deildarinnar en Kristianstad er á toppi deildarinnar með tíu stiga forskot á Malmö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×