Framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni sendur í leyfi Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. febrúar 2019 12:45 Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar. Vísir/BHJ
Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs hjá Vegagerðinni, hefur verið sendur í leyfi frá störfum. Samstarfsmönnum hans var tilkynnt um ákvörðunina í gær. Samkvæmt heimildum Vísis snýr málið að samskiptavanda innan Vegagerðarinnar sem hefur verið til skoðunar. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, gat í samtali við fréttastofu ekki gefið upp hvað fyrirhugað sé að Sigurður verði lengi frá störfum. Hann reiknaði þó ekki með því að það yrði í mjög langan tíma. Málið sé viðkvæmt en stofnunin hafi notið liðsinnis utanaðkomandi sérfræðinga við úrvinnslu þess. Fréttastofa beindi jafnframt fyrirspurnum til Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar, og Sigurðar Áss vegna ákvörðunarinnar. Hvorugt vildi tjá sig nánar. Sigurður Áss er verkfræðingur að mennt og hefur til dæmis verið áberandi í umfjöllun fjölmiðla um málefni Landeyjahafnar og nýs Herjólfs. Áður en Sigurður hóf störf hjá Vegagerðinni gegndi hann stöðu forstöðumanns hafnasviðs Siglingastofnunar. Hann var jafnframt meðal þeirra 25 einstaklinga sem sóttu um stöðu forstjóra Vegagerðarinnar um mitt síðasta ár.
Samgöngur Stjórnsýsla Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira