Samskipti snúast um völd Sena kynnir 29. janúar 2019 08:30 Allt leikur í lyndi til að byrja með.en brátt koma brestir í sambúð kvennanna. Elma Lísa, Raffaella Brizuela Sigurðardóttir og Enid Mbabazi í hlutverkkum sínum í kvikmyndinni Tryggð. Sena „
Við höldum gjarnan að við séum opnari en við erum, teljum okkur „líberal.“ Við kynnumst sjálfum okkur kannski aldrei betur en þegar við deilum húsnæði með öðrum, berskjölduð og getum ekki falið neitt,“ segir Elma Lísa Gunnarsdóttir, leikkona en hún fer með eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Tryggð sem frumsýnd verður 1. febrúar. Sagan fjallar um menningarárekstra, valdaójafnvægi og mannlega bresti en Gísella, persónan sem Elma Lísa leikur, gerist leigusali tveggja innflytjenda.Eftir að hafa kynnt sér aðbúnað innflytjenda ákveður Gísella að gerast leigusali.Myndin er byggð á skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Tryggðarpantur, sem kom út árið 2006. Þó þrettán ár séu liðin frá því bókin kom út á sagan erindi sem aldrei fyrr við samfélagið. Aðstæður innflytjenda og flóttafólks eru í brennidepli.„Við“ og „þau“„Það má segja að Auður hafi verið á undan sinni samtíð þegar hún skrifaði bókina. Sagan á akkúrat erindi við samfélagið í dag og er hárbeittur spegill: „þær“ og „hún“, „við“ og „þau“,“ segir Elma. „Sambúð kvennanna í myndinni kemur til eftir að Gísella kynnist aðstæðum innflytjenda þegar hún fær vinnu við að fjalla um húsnæðismál útlendinga. Sjálf stendur hún á tímamótum, þarf í fyrsta skipti á ævinni að hafa áhyggjur af peningum og til að ná endum saman býður hún tveimur konum að flytja inn til sín. Sú ákvörðun dregur dilk á eftir sér. Bakgrunnur kvennanna og reynsluheimur er ólíkur, menning þeirra og smekkur. Allt stangast á og árekstrar verða.„Gísella gerir þetta af góðum hug, býr í risastóru húsi, er einmana og vinafá en hún er þröngsýn. Samskipti geta verið flókin og snúast að einhverju leiti um völd. Þegar konurnar fara ekki eftir öllum hennar reglum hriktir í sambandinu og valdabaráttan hefst. Gísella kynnist óvæntri hlið á sjálfri sér,“ segir Elma Lísa. Gísella hafi reynst snúinn karakter.Gísella tengist dóttur annars leigjandans ákveðnum böndum. Claire Harpa Kristinsdóttir fer með hlutverk litlu stúlkunnar.Líkaði ekki við þessa konu„Þegar ég las bókina á sínum tíma fór Gísella í taugarnar á mér. Það var áskorun að finna mennskuna í henni. Mér tókst það samt á endanum. Öll erum við marglaga og Gísella er það auðvitað líka, mótuð af sínum reynsluheimi. Það er Gísella í okkur öllum. Ég er mjög hrifin af verkum Auðar Jónsdóttur og kom að uppsetningu verksins Fólkið í kjallaranum á sínum tíma í Borgarleikhúsinu, upp úr samnefndri bók Auðar. Það er gaman að gera bíó eða leikhús upp úr góðum bókum og vel skrifaða karaktera er gaman að gæða lífi. Gísella er mitt stærsta hlutverk í bíómynd og auðvitað var það áskorun í sjálfu sér að vera nánast í hverjum ramma,“ segir Elma Lísa.Elma Lísa og Claire Harpa fá leiðsögn leikstjóra.Önnur aðalhlutverk: Enid Mbabazi, Raffaella Brizuela Sigurðardóttir og Claire Harpa Kristinsdóttir. Tryggð verður frumsýnd 1. febrúar.Elma Lísa og leikstjórinn, Ásthildur Kjartansdóttir við tökur.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Senu.Tryggð - Kynningarstikla from Askja Films on Vimeo.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Íslensk fyrirsæta slær í gegn á tískupöllum Mílanó Tíska og hönnun Kristrún meðal hundrað rísandi stjarna Time Lífið Ekki er allt gull sem glóir Gagnrýni Leið yfir hana umkringd nöktum konum Lífið Kláraði lögfræði meðan hún sat fyrir hjá Dior Tíska og hönnun Herra skepna sló Hafþór utan undir Lífið Hnetukjúklingurinn hennar Höllu Lífið Er hún með „Bennifer“ hálsmen? Lífið Aðstoðarþjálfarinn reyndist ekki vera transkona Lífið Djúpt snortinn yfir viðbrögðum samfélagsins Tónlist Fleiri fréttir Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira