Handbolti

Þetta vitum við um króatíska liðið sem mætir Íslandi á HM í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Domagoj Duvnjak spilar fyrir Alfreð Gíslason hjá Kiel.
Domagoj Duvnjak spilar fyrir Alfreð Gíslason hjá Kiel. Vísir/EPA
Íslenska handboltalandsliðið hefur leik á HM 2019 í München í dag og mótherjinn er sterkt lið Króata sem komst í undanúrslitin á heimsmeistaramótinu fyrir tveimur árum.

Vísir hefur tekið saman nokkrar staðreyndir um króatíska landsliðið og má finna þær hér fyrir neðan.

- Svona komst Króatía á HM 2019 -

Króatíska landsliðið tryggði sér sæti á HM 2019 með að vinna Svartfjallalandi í umspili um laust sæti á mótinu.

Króatía gerði út um þetta í fyrri leiknum sem liðið vann 32-19 á heimavelli. Svartfjallaland vann heimaleikinn fimm dögum síðar með einu marki, 32-31, en var aldrei nálægt því að vinna upp muninn.

Landsliðsmenn Króata sjást hér nýkomnir heim með HM-bikarinn eftir að hafa orðið heimsmistarar á HM í Portúgal 2003.Vísir/EPA
- Gengi Króata á HM í handbolta í gegnum tíðina -

Þetta er þrettánda heimsmeistaramótið í sögu króatíska landsliðsins eða síðan að landið fékk sjálfsstæði frá Júgóslavíu. Nokkrir Króatar voru í gullaldarliði Júgóslavíu á níunda áratugnum þar á meðal markvörðurinn Mirko Basic.

Fyrsta heimsmeistaramót Króatíu var einmitt HM á Íslandi 1995 þar sem liðið komst alla leið í úrslitaleikinn en tapaði þar fyrir Frökkum.

Besti árangur Króata á HM er þegar þeir urðu heimsmeistarar á HM í Portúgal 2013 en liðið vann þá 8 af 9 leikjum sínum og 34-31 sigur á Þýskalandi í úrslitaleiknum.

Króatía hefur alls unnið fimm verðlaun á HM, eitt gull (2003), þrjú silfur (1995, 2005, 2009) og eitt brons (2013).

- Síðasta stórmót Króata -

Króatar héldu Evrópumeistaramótið fyrir ári síðan en urðu að sætta sig við að missa af undanúrslitunum og enda í 5. sætið.

Króatar töpuðu aðeins tveimur leikjum á mótinu, 31-35 á móti Svíum í riðlakeppninni og 27-30 á móti Frökkum í milliriðlinum. Þeir unnu síðan Tékklandi 28-27 í leiknum um fimmta sætið.

Króatar urðu í fjórða sæti á síðasta HM eftir 28-25 tap í framlengdum leik á móti Noregi í undanúrslitum og 31-30 tap á móti Slóveníu í leiknum um bronsið.

Luka Cindric skorar á móti Íslandi á EM í fyrra.Vísir/EPA
- Gengið á móti Íslandi á stórmótum -

Ísland hefur enn ekki tekist að vinna Króatíu á stórmóti. Þjóðirnar mættust í sjöunda sinn á EM í Króatíu fyrir ári síðan og Króatar unnu þann leik 29-22.

Tvö stærstu töp Íslands á móti Króatíu á stórmótum hafa einmitt komið í síðustu tveimur leikjum því Króatar unnu Ísland með 9 marka mun, 37-28, á EM 2016.

Króatar hafa unnið fjórar síðustu viðureignir þjóðanna og alls sex af sjö leikjum þeirra á stórmótum. Besti árangur íslenska liðsins er 26-26 jafntefli á EM í Austurríki 2010 en þá var Guðmundur Guðmundsson einmitt þjálfari íslenska landsliðsins.

Domagoj Duvnjak tók við af Ivano Balic sem aðalstjarna Króata og hér fagnar þeir í leik á móti Íslandi á EM 2010.Vísir/EPA
- Stærstu stjörnurnar í liði Króatíu -



Leikstjórnandinn Domagoj Duvnjak hjá Kiel er þekktasti leikmaður liðsins en hann er fyrrum besti handboltamaður heims og var valinn í úrvalslið síðasta heimsmeistaramóts. Duvnjak er orðinn þrítugur og er bæði leikjahæstur og markahæstur í króatíska hópnum.

Aðrir öflugir leikmenn eru sem dæmi Luka Cindric, leikstórnandi pólska liðsins Vive Kielce og vinstri hornamaðurinn Manuel Strlek sem með Telekom Veszprém í Ungverjalandi.

Það má heldur ekki gleyma Luka Stepancic, örvhentri skyttu frá Paris Saint Germain eða reynsluboltanum Zlatko Horvat sem spilar í hægra horninu hjá RK Zagreb.

Í leiknum á móti Íslandi á EM í fyrr þá var Luka Cindric markahæstur með sjö mörk og 4 stoðsendingar en hann var þá valin maður leiksins.

Lino Cervar er þjálfari Króatíu.Vísir/EPA
- Þjálfari Króatíu á HM 2019 -

Þjálfari Króatíu er hinn gamalreyndi Lino Cervar. Cervar er orðinn 68 ára gamall og hefur tvisvar tekið að sér þjálfun króatíska landsliðsins. Hann þjálfaði landsliðið fyrst á árunum 2002 til 2010 og gerði Króatíu meðal annars að heimsmeisturum árið 2003 og Ólympíumeisturum 2004.

Cervar tók síðan aftur við landsliðinu í mars árið 2017 og Evrópumótið í fyrra var hans fyrsta mót eftir það.

Undir stjórn Lino Cervar þá komust Króatar þrisvar sinnum í úrslitaleik HM og tvisvar sinnum í úrslitaleik EM auk þess að spila til úrslita á ÓL í Aþenu 2004.

Króatía hefur unnið sex verðlaun á stórmótum undir stjórn Lino Cervar, tvenn gullverðlaun og sex silfurverðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×