Innlent

Ekið á hjólreiðamann í Grafarholti

Kjartan Kjartansson skrifar
Hjólreiðamaðurinn var fluttur á sjúkrahús. Myndin er úr safni.
Hjólreiðamaðurinn var fluttur á sjúkrahús. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Bíl var ekið á hjólreiðamann við verslun Krónunnar við Þjóðhildarstíg í Grafarholti í dag. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins fór betur en á horfðist og er hjólreiðamaðurinn ekki talinn alvarlega slasaður.

Óhappið átti sér stað um klukkan hálf tvö í dag. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á sjúkrahús með einhver meiðsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×