Rúmlega þúsund kröfur vegna Gaman ferða Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. júní 2019 10:25 Bragi Hinrik Magnússon, Skúli Mogensen, Þór Bæring Ólafsson og Engilbert Hafsteinsson þegar tilkynnt var árið 2015 að WOW hefði eignast 49 prósent í Gaman-Ferðum. Wow Air
Ferðamálastofa áætlar að nokkurn tíma muni taka að fara yfir þann mikla fjölda krafna sem gerður var í tryggingafé ferðaskrifstofunnar Gaman ferða, sem lögðu upp laupana í vor. Kröfurnar voru alls 1038 talsins en kröfufrestur rann út á miðnætti fimmtudaginn 20. júní. Gamanferðir voru í 49% eigu flugfélagsins WOW Air, sem hætti starfsemi í lok mars. Tæpum tveimur vikum síðar skilaði Þór Bæring Ólafsson, framkvæmdastjóri Gaman ferða, inn ferðaskrifstofuleyfi félagsins. Í samtali við Vísi sagði Þór að fall WOW hafi reynst meira áfall en búist var við en ferðaskrifstofan skipulagði að mestu leyti ferðir í kringum flug félagsins. Lausafjárstaða félagsins var auk þess ekki nógu sterk til að tryggja áframhaldandi rekstur. Því hafi verið tekin ákvörðun um að hætta starfsemi til að þjónusta best hagsmunum viðskiptavina og starfsfólks. Gaman ferðir báru lögbundnar tryggingar sem ferðaskrifstofum er skylt að hafa, sem ætlað er að grípa inn í og og endurgreiða þeim sem ekki komast í fyrirhugaðar ferðir. Það var svo í höndum Ferðamálastofu að vinna úr kröfum í tryggingaféð. Á vef Ferðamálastofu segir að framundan sé yfirferð og vinnsla krafna en í ljósi fjöldans megi búast við að nokkurn tíma taki að fara yfir og taka afstöðu til þeirra. „Reynt verður að hraða ferlinu eins og hægt er en þó má í fyrsta lagi búast við að mál fari að skýrast með haustinu. Hafi kröfuhafi sent inn fleiri en eina kröfu, vegna sömu ferðar, verður litið svo á að seinni krafan dragi til baka fyrri kröfur.“
Ferðamennska á Íslandi Gjaldþrot WOW Air Tengdar fréttir Gaman-Ferðir grípa til uppsagna vegna falls WOW air WOW air átti 49 prósent í Gaman-Ferðum. 29. mars 2019 16:20 Gaman Ferðir hætta starfsemi Ferðaskrifstofan Gaman Ferðir, sem var að 49% hlut í eigu WOW Air, hefur skilað inn ferðaskrifstofuleyfi sínu og er hætt rekstri. 11. apríl 2019 21:00 Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Sjá meira
Gaman-Ferðir grípa til uppsagna vegna falls WOW air WOW air átti 49 prósent í Gaman-Ferðum. 29. mars 2019 16:20
Gaman Ferðir hætta starfsemi Ferðaskrifstofan Gaman Ferðir, sem var að 49% hlut í eigu WOW Air, hefur skilað inn ferðaskrifstofuleyfi sínu og er hætt rekstri. 11. apríl 2019 21:00