Ekki er ólíklegt að þetta mál bætist við stöðugt lengri lista sem setur strik í reikninginn varðandi stjórnarsamstarfið. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrðir í samtali við Vísi, að slíkur skattur muni aldrei fara í gegnum þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Hann segist ekki muna eftir því að þetta mál hafi verið rætt innan hans.
Brauðið hlýtur að vera næst á dagskrá
„Ég hef aldrei heyrt að þetta væri inni í myndinni. Einhver sykurskattur? Hann var afnuminn þegar við komumst að eftir vinstri stjórnina.“Brynjar dregur ekkert úr því spurður að þetta muni fara þversum í margan Sjálfstæðismanninn. Honum hugnast ekki þessi hugmyndafræði, skattlagning af þessu tagi.
„Og að skattleggja okkur líka vegna þess að einhverjir aðrir eru óhóflegir í áti? Það líst mér ekki á. Þetta er hugmyndafræði sem menn trúa á en þeir geta þá alveg eins skattlagt kolvetni sérstaklega, þess vegna,“ segir Brynjar sem bendir á að líkast til sé heilbrigðisvandi sem rekja má til brauðáts ekki minni en sá sykurtengdi.
„Hvar endar þetta? Þetta er bara vandræðalegt. Við verðum að eiga við óhófið með öðrum hætti. Ég er ekki hrifinn af þessu.“

Verið að skattleggja almenning
Brynjar segist hafa heyrt í mörgum innan síns flokks. „Ég held ég geti alveg fullyrt að þetta fari aldrei í gegnum þingflokkinn. Þetta er náttúrlega bara skattur á almenning. Ég er ekki fyrir að hringla í þessu vaskkerfið öllu saman, nóg er hringlið samt. Best að eitt gildi yfir allt. Það er það besta. Við tökum túrtappa og dömubindi út, alltaf verið ð gera einhverjar undantekningar og það flækir þetta og gerir þyngra.“Reyndar er það ekki svo að andstöðu við fyrirhugaðan sykurskatt sé eingöngu að finna meðal prinsippmanna í Sjálfstæðisflokknum. Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi á Akranesi, ritaði harðorðan pistil á Facebooksíðu sína þar sem hann fordæmir þessar hugmyndir fortakslaust.
„Það er ljóst að hugmyndir að stórauknum sykurskatti uppá allt að 20 til 30 prósent rúmast alls ekki innan þess loforðs sem ríkisstjórnin gaf verkalýðshreyfingunni samhliða gerð lífkjarasamningsins,“ segir Vilhjálmur meðal annars. Og bætir við: „Ég hins vegar geri mér alveg grein fyrir að það er lýðheilsumál að taka á aukinni sykurneyslu en ég tel það ekki vænlegt til árangurs að gera það á forræðishyggjunni einni saman.“
Oftúlkun á ákvæðum stjórnarsáttmála
Brynjar segir þetta ekki farið í gegnum ríkisstjórnina enn, hún hafi ekki gert annað en kynna niðurstöðu landlæknis. Og hann vill ekki meina að þessa finnist staður í stjórnarsáttmálanum. En, þar segir: „Ríkisstjórnin mun leggja sérstaka áherslu á forvarnir og lýðheilsu, meðal annars í menntakerfinu og heilbrigðiskerfinu og með stuðningi við íþróttir, æskulýðsstarf og öldrunarstarf. Skoðuð verður beiting efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu.“Brynjar segir að þetta atriði í stjórnarsáttmála snúist ekki um sykurskatt.

Svo efast ég um að þetta muni gera nokkurt gagn. Önnur atriði sem ráða því af hverju menn verða of feitir.“Brynjar telur ekki úr vegi að ætla að þetta sé, ef að er gáð, siðferðilega vafasamt. Og jafnvel sé verið að níðast á fíklum í nafni góðmennskunnar.
„Já, það er svolítið þannig. Pinsippíelt er ég á móti þessu. Fólk verður að bera ábyrgð á þessu. Sjálfsagt að hjálpa fólki en ég ætla ekki að skattleggja Pétur og Pál vegna meintra lasta. Við erum alltaf að skipta okkur af fólki, það ber enginn ábyrgð á sjálfum sér lengur.“
Alið á almennu ábyrgðarleysi
Brynjar segir þetta plágu meðal stjórnmálamanna og viðhorf sem þessi alltof ráðandi í samfélaginu öllu.„Hlutverk okkar stjórnmálamanna er að búa til almenna umgjörð svo atvinnulífið getur blómstrað en við eigum að láta fólk í friði að öðru leyti. En, nei, við erum farin að skipta okkur að öllu sem fólk gerir. Og allt í nafni þess að við séum að gæta hagsmuna þeirra. Þetta er orðið algjörlega innbyggt í okkur. Við erum eins og stjórnsöm móðir heima sem skiptir sér að öllu sem börnin gera. Skiptu þér að annarra manna börnum en láttu aðra vera.“
Brynjar segir þessa áráttu stöðugt vera að aukast og það sé verulegt áhyggjuefni. Og veður válynd því þó Sjálfstæðisflokkurinn muni setja sig á móti þessu geti samstarfsflokkar í ríkisstjórn fundið annan meirihluta fyrir málinu á þingi.