Álaborg deildarmeistari í Danmörku Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. apríl 2019 15:18 Álaborg varð bikarmeistari á dögunum og í dag bættist annar titill í hús vísir/getty
Álaborg er danskur deildarmeistari í handbolta eftir sigur á Kolding í lokaumferð deildarkeppninnar í dag. Íslendingarnir í liði Álaborgar áttu frábæran leik í dag. Janus Daði Smárason var markahæstur, ásamt Sebastian Barthold, með sjö mörk og hann lagði upp tvö mörk fyrir liðsfélaga sína. Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk en átti fimm stoðsendingar í 28-25 sigrinum á Kolding. Fyrir lokaumferðina var Álaborg með eins stigs forskot á GOG á toppi deildarinnar og þurfti því sigurinn til þess að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Leikmenn GOG gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að reyna að hrifsa efsta sætið, þeir unnu Ribe-Esbjerg 32-28. Óðinn Þór Ríkharðsson lét nokkuð lítið fyrir sér fara í liði GOG, hann skoraði aðeins eitt mark. Rúnar Kárason gerði fjögur mörk og átti fimm stoðsendingar fyrir Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson skoraði fimm mörk. Tap Ribe-Esbjerg þýðir að þeir missa af úrslitakeppninni og fara í staðinn í umspil um að halda sæti sínu í deildinni því Sönderjyske gerði jafntefli við Holstebro. Einu stigi munaði á liðunum fyrir lokaumferðina en Sönderjyske er með betri innbyrðisstöðu og fór því upp fyrir Ribe-Esbjerg með jafnteflinu. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk fyrir Sönderjyske en Vignir Svavarsson var ekki með Holstebro vegna meiðsla. Ríkjandi meistarar í Skjern sendu Ringsted niður í B-deildina með 36-31 sigri. Björgvin Páll Gústavsson varði aðeins þrjá bolta í marki Skjern en hann skoraði tvö mörk. Tandri Már Konráðsson komst ekki á blað. Það er því ljóst að Íslendingaslagur verður í 8-liða úrslitunum á milli Álaborgar og Sönderjyske.
Handbolti Mest lesið Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Enski boltinn Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Fótbolti „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ Íslenski boltinn Bjarni Jó kveður Selfoss Íslenski boltinn Féll á lyfjaprófi á HM íslenska hestsins og missir silfur: „Eins og ég sé glæpamaður“ Sport Uppgjörið: Keflavík - Valur 79-88 |Frábær endurkomusigur hjá Val Körfubolti Dagskráin í dag: Skiptiborðið og Blikar í Evrópu Sport Valur vann stigalausu Stjörnuna Handbolti De Bruyne lagði tvisvar upp fyrir Højlund Fótbolti Evrópumeistararnir með endurkomusigur gegn Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Sjá meira