Viðskipti erlent

Olíuboranir aukast hvergi meira en hjá Norðmönnum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Borpallurinn West Hercules í Barentshafi við boranir fyrir norska ríkisolíufélagið Equinor.
Borpallurinn West Hercules í Barentshafi við boranir fyrir norska ríkisolíufélagið Equinor. Mynd/ Ole Jørgen Bratland, Equinor.
Olíufélög hafa ekki borað meira í lögsögu Noregs frá olíuverðfallinu mikla árið 2014. Engin önnur þjóð hefur aukið olíuleit meira en Norðmenn á þessu ári. 

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu norska greiningafyrirtækisins Rystad Energy, sem Dagens Næringsliv fjallar um. Í henni segir að í ár verði boraðir alls 130 olíubrunnar, ýmist með fljótandi borpöllum eða botnföstum. Af þeim séu 55 leitarborholur, sem er 16 prósenta aukning frá árinu 2018. 

„Við gerum ráð fyrir einhvers staðar á bilinu 30 til 50 rannsóknarborholum á ári fram til ársins 2030,“ segja skýrsluhöfundar Rystad Energy.

„Noregur er það land í heiminum þar sem aukningin er mest. Olíufélögin eru með sterka lausafjárstöðu og það er mikil fylgni milli þess og þeirra fjármuna sem varið er til olíuleitar,“ segir talsmaður Rystad. 

Hann bendir á að norska landgrunnið sé mjög samkeppnishæft. Frá því olíukreppan skall á hafi félögum tekist að lækka kostnað við olíuleit verulega. Fjöldi nýrra olíulinda hafi fundist í nágrenni við lindir sem þegar séu nýttar, sem bjóði upp á mikla arðsemi. 

Sjá einnig: Nýjasta olíulindin framlengir olíuævintýri Norðmanna um áratugi 

Fleiri olíufélög hafi verið að bætast við, sem hafi einnig stuðlað að aukinni bjartsýni í norska olíugeiranum. Og enginn telji að bjartsýnin minnki á næstu árum. Mikil olíuleit þýðir mikil umsvif í þjónustu við leitina. Þannig segja greinendur að heildartekjur norska olíuþjónustugeirans á síðasta ári hafi numið um 370 milljörðum norskra króna, sem var tíu prósenta vöxtur frá árinu áður. 

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, var í heimsókn sinni til Reykjavíkur í lok ágústmánaðar spurð í fréttum Stöðvar 2 hvort það gæti farið saman að tala hátíðlega um norðurslóðir og loftlagsmál en vera á sama tíma að stórauka olíuleit í Barentshafi. Hér má sjá svar hennar: 


Tengdar fréttir

Grænlendinga dreymir enn um olíuævintýri

Grænlensk stjórnvöld hafa kynnt nýja fimm ára áætlun um olíuleit. Með henni er lýst þeirri stefnumörkun að Grænland verði olíuframleiðsluland í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×