Á leið í Mekka langhlaupsins í Kenýu Hjörvar Ólafsson skrifar 8. nóvember 2019 16:30 Elín Edda er hér glaðbeitt í hlaupi sínu í Frankfurt þar sem hún bætti tíma sinn umtalsvert. Hún var þarna að hlaupa sitt annað heila maraþon á hlaupaferli sínum en hún stefnir á að bæta tíma sinn enn frekar á næsta ári Fréttablaðið/Aðsend „
Lykillinn að því að ég náði að bæta mig svona mikið er að ég náði upp stöðgugleika í æfingarútínu minni fyrir hlaupið. Ég var reyndar aðeins meidd í upphafi æfingatímabilsins og nældi mér svo í smá pest í aðdraganda hlaupsins en þess utan var ég ekki að detta út úr æfingaplaninu í langan tíma. Mér tókst að æfa stöðugt í nokkra mánuði fyrir hlaupið og það skilaði sér í þessari bætingu. Mögulega hefði bætingin getað orðið meiri og ég finn það alveg að ég á inni og get bætt tíma minn enn frekar í næsta hlaupi,“ segir Elín Edda um aðdraganda hlaupsins. „Það reyndar hefur aðeins áhrif á æfingaplanið að það er ákveðinn óstöðugleiki sem tengist starfinu mínu en ég hef aftur á móti náð að búa mér til góða rútínu í samstarfi við Mörthu. Þá skipti líka máli að ég náði upp góðum svefni og mataræðið var gott fyrir hlaupið. Martha er svo mjög góð í að setja upp plan sem miðar út frá vaktaplaninu í vinnunni og álagsstýringin er mjög góð,“ segir Elín Edda sem starfar sem læknir. „Þessi mikla bæting kom mér klárlega á óvart en þetta kom í kjölfar á bætingu í 10 kílómetra hlaupi og hálfu maraþoni frá því í sumar. Eftir að hafa náð jafn góðum tíma og raun bar vitni í fyrsta heila maraþoninu mínu þá fór ég bara með raunhæfar væntingar inn í hlaupið í Frankfurt og þetta var umfram það sem ég stefndi að. Ég byrjaði hlaupið aðeins hægar en ég ætlaði að gera en vann mig svo vel inn í hlaupið og náði upp góðum hraða og tilfinningu þar sem ég hlóð á hálferðri sjálfsstýringu,“ segir hún um hlaupið sjálft.Elín Edda er hér ásamt þjálfara sínum Mörthu Ernstsdóttur í Frankfurt.Fréttablaðið/AðsendTilfinningin í hlaupinu var góð „Ég fór í háfjallabúðir í aðdragada hlaupsins sem hjálpaði mér mikið. Svo átti ég einnig góða viku fyrir hlaupið þar sem ég mætti tímanlega til Frankfurt og náði að vera ein í nokkra daga æfði, fór í gufu, rúllaði og bjó líkamann vel undir komandi átök. Ég náði líka betri tökum á stressinu og ég hafði það á orði við Mörthu degi fyrir hlaupið og á keppnisdegi að ég hefði smá áhyggjur af því að stressið eða spennan væri ekki nógu mikil. Fiðringurinn kom hins vegar í tæka tíð og ég var enn með það bak við eyrað að ég gæti lent á vegg sem getur bara alltaf gerst,“ segir þessi öflugi hlaupari. „Þegar ég var búin með um það bil 37 kílómetra og ég var á góðum tíma vissi ég að ég gæti klárað hlaupið. Það var bara spurning um það á hversu góðum tíma ég myndi hlaupa. Þá leið mér mjög vel og kláraði hlaupið með góðri tilfinningu. Þá skipti líka miklu máli að ég náði að borða rétt og ég féll ekki í blóðsykri þannig að það hefði áhrif á mig,“ segir Elín Edda enn fremur. „Eins og ég sagði áðan þá finn ég alveg að það er rúm fyrir bætingu en ég ætla að læra af því hvernig ég æfði og keppti í kjölfar síðasta heila maraþons. Nú ætla ég að hvíla mig hvað keppnir varðar í nokkra mánuði, ná góðri endurheimt, æfa vel og byggja mig upp fyrir næstu verkefni. Ég er á leiðinni til Kenýu í janúar í Mekka langhlaupanna í háfjallabúðir Ég hlakka mikið til þess að æfa við þær aðstæður sem fremstu langhlauparar sögunnar alast upp við og æfa í. Næsta mögulega verkefni er HM í lok mars þar sem ég vonast til þess að fá að keppa í hálfu maraþoni. Svo stefni ég á að taka næsta heila maraþon í apríl. Það er raunhæft fyrir mig að taka þátt í tveimur heilum maraþonum á ári. Hvað Ólympíuleika varðar þá fjarlægðist sá draumur svolítið þegar lágmarkið var hert í 2:29,00 sekúndur í sumar. Það er hæpið að ég nái að bæta mig svo mikið í tæka tíð fyrir leikana í Tókýó næsta sumar, en ég ætla alls ekki að gefa upp vonina. Markmiðið er að fara einhvern tímann á Ólympíuleika en ég einblíni meira á það þessa stundina að halda áfram að bæta tímann minn með hverju hlaupi sem ég hleyp og við sjáum svo til hverju það skilar mér,“ segir Elín Edda um framhaldið.
Birtist í Fréttablaðinu Frjálsar íþróttir Hlaup Íslendingar erlendis Kenía Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Sjá meira