Strákarnir hans Dags frábærir gegn Spáni en það dugði ekki til Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. janúar 2019 21:07 vísir/getty
Evrópumeistarar Spánverja þurftu að hafa mikið fyrir því að sigra lærisveina Dags Sigurðssonar í japanska landsliðinu á HM í handbolta í kvöld. Japanir, sem höfðu tapað fyrstu tveimur leikjum sínum, skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins og náðu að koma í veg fyrir að Spánverjar skoruðu þar til á 9. mínútu er Raul Entrerrios skoraði loks fyrsta mark Spánar. Spánverjar náðu þá að jafna í 4-4 og leikurinn var í járnum alveg þar til flautað var til hálfleiks. Þá var staðan orðin 10-11 Japan í vil. Spánverjar byrjuðu seinni hálfleikinn á 6-1 kafla og var staðan allt í einu orðin 16-12. Þar var grunnurinn að sigrinum kominn, Japanarnir héldu áfram að spila gríðarlega vel og þeir héngu í þeim spænsku allt til leiksloka en náðu ekki að koma með áhlaupið sem þurfti. Lokatölur 26-22 fyrir Spán. Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska landsliðinu áttu ekki í neinum vandræðum með Angóla og unnu 37-19 sigur. Frakkar völtuðu yfir Kóreu í A-riðli 34-23 eftir að staðan hafði verið 17-16 í hálfleik. Þegar þremur umferðum af fimm í riðlakeppninni er lokið er staðan því svona:A riðill Frakkland, 6 stig Þýskaland, 5 stig Rússland, 4 stig Brasilía, 2 stig Serbía, 1 stig Kórea, 0 stigB riðill Króatía, 6 stig Spánn, 6 stig Makedónía, 4 stig Ísland, 2 stig Japan, 0 stig Barein, 0 stigC riðill Danmörk, 6 stig Noregur, 6 stig Austurríki, 2 stig Túnis, 2 stig Síle, 2 stig Sádi Arabía, 0 stigD riðill Svíþjóð, 6 stig Ungverjaland, 5 stig Katar, 2 stig Egyptaland, 2 stig Angóla, 2 stig Argentína, 1 stig
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira