Neysluvatn er matvara Svavar T. Óskarsson skrifar 20. febrúar 2018 07:00 Vegna umræðna um mengun neysluvatns á virkjunarsvæðum vatnsveitna á höfuðborgarsvæðinu og víða um land er ekki úr vegi að fara nokkrum orðum um lög og reglur varðandi neysluvatn, áhugasömum til upplýsinga. Samkvæmt lögum og reglugerðum ber stjórnvöldum að ábyrgjast að mannvirkjagerð sé með þeim hætti að neytendum sé tryggt neysluvatn úr neysluvatnskerfum húsa. Í lögum um matvæli nr. 93/1995 er neysluvatn skilgreint sem matvara. Megintilgangur laganna er eins og segir: 1. gr. Tilgangur laganna er að tryggja, svo sem kostur er, gæði, öryggi og hollustu matvæla og að merkingar og aðrar upplýsingar um þau séu réttar og fullnægjandi. 2. mgr. Neysluvatn: vatn, í upphaflegu ástandi eða eftir meðhöndlun, sem notað er til drykkjar, við matargerð og í matvælafyrirtækjum. Hitaveituvatn telst ekki neysluvatn. Heitt neysluvatn verður til við upphitun á köldu neysluvatni t.d. í gegnum varmaskipti. Í tilskipun EB/EES nr. 98/83/EC sem var innleidd í íslenska löggjöf með reglugerð nr. 536/2001 um [tiltekur gæði] neysluvatn segir í 6. gr.: Staður þar sem samræmis skal gætt við færibreytugildin [aðstæður] a) þegar um er að ræða vatn frá dreifikerfi, á þeim stað á athafnasvæði eða í starfsstöð þar sem vatnið kemur úr krönum sem eru venjulega notaðir fyrir neysluvatn. Í sömu tilskipun sem tók gildi á Íslandi 2003 segir: 25) Ef stöðlum samkvæmt þessari tilskipun er ekki fylgt skal viðkomandi aðildarríki grafast fyrir um orsakir þess og tryggja að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða til úrbóta eins fljótt og unnt er til að færa gæði vatnsins í rétt horf. 26) Mikilvægt er að koma í veg fyrir þann möguleika að mengað vatn geti valdið heilsutjóni. Banna skal dreifingu á slíku vatni eða takmarka notkun þess. Þegar lög um vatnsveitur nr. 93/1995 voru sett urðu mikil umskipti í allri starfsemi vatnsveitna, þar sem nýjar reglur skilgreindu vatnsveitur sem matvælafyrirtæki. Það er löngu tímabært að yfirvöld mannvirkjagerðar á Íslandi setji skýrari og ítarlegri reglur um starfsemi vatnsveitna og lagnabúnað neysluvatnskerfa í húsum, bæði hvað varðar nýlagnir og viðhald þeirra svo og að tryggja eftirfylgni með að þeim sé framfylgt. Þannig verður vatnsveitum og fagaðilum auðveldað að uppfylla ákvæði laga og reglna um neysluvatn og neytendum tryggt kalt og heitt neysluvatn sem uppfyllir kröfur sem gerðar eru til vatnsins sem matvöru.Höfundur er ráðgjafi hjá Orkuumsjón ehf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun