Stórt tap og Ísland í vondum málum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. desember 2018 18:37 Arna Sif Pálsdótti var markahæst í íslenska liðinu í dag. vísir/ernir
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta er í erfiðum málum í forkeppni HM í handbolta 2019 eftir stórt tap fyrir Makedóníu í öðrum leik liðsins í riðlinum. Ljóst var fyrir leikinn að hann yrði líklega úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins, eina sætið sem gefur öruggt sæti í umspilinu um sæti á HM að ári. Íslenska liðið byrjaði ágætlega og var staðan 4-3 Íslandi í vil snemma leiks. Þá tóku Makedónar hins vegar völdin á vellinum, skoruðu fimm mörk í röð og komust yfir. Íslenska liðið náði einu marki áður en Makedónía skoraði önnur þrjú mörk, svo í heildina tók Makedónía 8-1 kafla. Fyrri hálfleikurinn var heilt yfir mjög slæmur hjá íslenska liðinu, þá sérstaklega sóknarleikurinn. Staðan í leikhléi var 10-16 og ljóst að íslenska liðið þurfti að gera miklu betur í seinni hálfleiknum. Það gekk hins vegar ekki. Nokkuð jafnt var með liðunum framan af í seinni hálfleik en heimakonur náðu þó að auka forskot sitt og þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var munurinn orðinn níu mörk. Þegar upp var staðið endaði leikurinn með 21-29 tapi Íslands. Ekki nógu góð frammistaða hjá liðinu sem þarf nú að treysta á að Tyrkir vinni Makedóníu, úrslit sem eru frekar ólíkleg, til þess að eiga möguleika á að enda í fyrsta sæti riðilsins. Arna Sif Pálsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir drógu vagninn fyrir Ísland í sóknarleiknum með fimm mörk hvor. Fjórir leikmenn komu næstir með tvö mörk.
Handbolti Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Sjá meira