Gefa lítið fyrir svör seðlabankastjóra Kristinn Ingi Jónsson skrifar 15. mars 2018 06:00 Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Bankinn segir að innflæðishöftin verði óbreytt enn um sinn. Vísir/ernir
Með því að kippa áhrifum markaðarins úr sambandi og hindra innflæði fjármagns til landsins gera innflæðishöft Seðlabanka Íslands það að verkum að bankinn getur viðhaldið hærra stýrivaxtastigi en ella. Þetta er mat Ásdísar Kristjánsdóttur, forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Hún kallar eftir því að stjórnendur bankans greini skaðsemi haftanna. Þau séu kostnaðarsöm og brengli verðmyndun á mörkuðum. Már Guðmundsson seðlabankastjóri gaf á fundi í Seðlabankanum í gærmorgun lítið fyrir þá gagnrýni að höftin, sem sett voru á innflæði fjármagns í júní 2016, hefðu stuðlað að hærri vaxtakjörum til heimila og fyrirtækja. Án haftanna væru vextir vissulega lægri „en gengi krónunnar væri einnig hærra því miðlun peningastefnunnar hefði í ríkari mæli verið beint um gengisfarveginn“ en vaxtafarveginn. Það byði hættunni heim, enda væri raungengi mjög hátt í sögulegu samhengi og frekari hækkun myndi fylgja „aukin áhætta og álag á útflutningsatvinnuvegi“. Í sérstakri yfirlýsingu sem seðlabankastjóri las upp á fundinum kom fram að ekki væri tilefni til þess að slaka á höftunum. Hins vegar væru í undirbúningi innan bankans tillögur að breytingum á framkvæmd haftanna sem gætu tekið gildi á síðustu mánuðum ársins. Alþingi hefði þó lokaorðið í þeim efnum. Umrædd innflæðishöft virka þannig að 40 prósent af innflæði fjármagns vegna fjárfestinga í skráðum skuldabréfum og innlánum þarf að binda í eitt ár á núll prósent vöxtum. Einn megintilgangur haftanna var að sporna við vaxtamunarviðskiptum með íslensk ríkisskuldabréf, þar sem aðdráttaraflið er einkum að hagnast á miklum vaxtamun Íslands við útlönd.Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA Capital ManagementValdimar Ármann, forstjóri GAMMA Capital Management, segist hafa skilning á því að Seðlabankinn vilji koma í veg fyrir að hingað komi fjárfestar í leit að vaxtamunarviðskiptum. Hins vegar standi innflæðishöftin, eins og Seðlabankinn hefur útfært þau, í vegi fyrir æskilegri fjárfestingu í íslensku hagkerfi. „Á sama tíma og Seðlabankinn reynir að stöðva það sem hann telur óæskilegt kemur hann í veg fyrir það sem getur talist æskileg fjárfesting. Erlendir fjárfestar hafa um þessar mundir mikinn áhuga á því að fjárfesta hér á landi í verkefnum tengdum íslenska hagkerfinu, sér í lagi í ferðaþjónustutengdum geirum og innviðaverkefnum. Það má í raun sjá þennan sterka áhuga þeirra í gegnum fjárfestingar á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Það er afar jákvætt enda getum við ekki fjármagnað sjálf allar þær framkvæmdir sem þörf er á að ráðast í. Við þurfum nauðsynlega á erlendu fjármagni að halda til þess og þá ekki aðeins frá hlutabréfafjárfestum heldur einnig skuldabréfafjárfestum,“ segir hann. Már tók fram á fundinum að það væri afstaða Seðlabankans að höftin yrðu óbreytt enn um sinn þar sem vaxtamunur gagnvart útlöndum væri enn verulegur. „Almennt má þó segja að aðstæðurnar til slökunar batni eftir því sem vaxtamunur minnkar, gengi lækkar eitthvað og spenna slaknar,“ nefndi hann. Ásdís segir að setning haftanna hafi upphaflega verið viðbrögð Seðlabankans við viðvarandi miklum vaxtamun við útlönd„Seðlabankinn hefur kerfisbundið, frá því að verðbólga fór undir verðbólgumarkmið fyrir fjórum árum, verið að spá hærri verðbólgu en raunin hefur orðið. Seðlabankinn hefur því viðhaldið hærra vaxtastigi en þörf hefur verið á á sama tíma og vextir erlendis hafa verið í sögulegu lágmarki.“ Það sé engin tilviljun að vaxtamunurinn sé lítið ræddur á vaxtaákvörðunarfundum bankans enda skipti hann engu máli í skjóli hafta. „Ef hér væru ekki innflæðishöft liggur það í augum uppi að Seðlabankinn yrði að horfa til þess hvernig vaxtastig erlendis er að þróast. Vaxtamunur við útlönd væri því óhjákvæmilega ekki svona mikill. Rannsóknir annarra ríkja sem hafa verið með svipuð höft hafa sýnt fram á það að innflæðishöft stuðla að hærra vaxtastigi en ella og hærri fjármögnunarkostnaði til fyrirtækja,“ segir Ásdís.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Óbreyttir stýrivextir Meginvextir bankans, það er vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,25 prósent. 14. mars 2018 08:57 Már segir bindiskylduna hafa þjónað hlutverki sínu vel Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að ekki standi til að endurskoða bindiskyldu á innflæði gjaldeyris sem notaður er í fjárfestingar í skuldabréfum. Bindiskyldan var sett á til að draga úr ofrisi krónunnar og Már segir að hún hafi þjónað sínu hlutverki vel. 14. mars 2018 18:45 Mest lesið „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Viðskipti innlent Kann best við sig í háspennunni Samstarf Fleiri fréttir Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Sjá meira
Óbreyttir stýrivextir Meginvextir bankans, það er vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,25 prósent. 14. mars 2018 08:57
Már segir bindiskylduna hafa þjónað hlutverki sínu vel Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að ekki standi til að endurskoða bindiskyldu á innflæði gjaldeyris sem notaður er í fjárfestingar í skuldabréfum. Bindiskyldan var sett á til að draga úr ofrisi krónunnar og Már segir að hún hafi þjónað sínu hlutverki vel. 14. mars 2018 18:45