Fimmtíu bílar fuðruðu upp Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. júní 2018 06:06 Slysið átti sér stað á fjölfarinni hraðbraut. Vísir/Getty
Níu létust er olíuflutningabíll sprakk í loft upp í stærstu borg Nígeríu, Lagos, í gærkvöld. Slysið átti sér stað á fjölfarinni hraðbraut í borginni. Eldurinn sem kom upp í olíuflutningabílnum barst í um 50 aðrar bifreiðar, þeirra á meðal voru fimm farþegaflutningabílar. Ökumaður olíuflutningabílsins er sagður hafa misst stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að olía helltist yfir mikið svæði. Þar að auki kunna bremsur bílsins að hafa verið ónýtar.Bremsur bílsins kunna að hafa verið bilaðar.Visir/GettySprengingar sem þessar eru sagðar vera algengar í Nígeríu á vef breska ríkisútvarpsins, en ríkið er stærsti olíuframleiðandi Afríku. Eldsneytið sé flutt langar leiðir á gömlum flutningabílum sem ekið er eftir lélegum vegum. Talsmaður nígerísku vegagerðarinnar segir að svo virðist sem bílinn hafi oltið á hliðina þegar honum var ekið yfir brú. Þá hafi olía byrjað að leka hratt úr bílnum sem svo einhvern veginn kviknaði í. Eldurinn hafi svo borist á milli bifreiða á ógnarhraða. Forseti Nígeríu, Muhammadu Buhari, segir að um sé að ræða eitt alvarlegasta slys í landinu á síðari árum. Nú verði allt kapp lagt á að bæta öryggismál til að tryggja að slíka slys verði ekki aftur að veruleika.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Fleiri fréttir Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Sjá meira