Það var ljóst nánast frá síðdegi föstudagsins að Bandaríkin áttu ekki séns í Evrópu þrátt fyrir góða byrjun að þessu sinni en evrópsku kylfingarnir spiluðu miklu betur og virtust hafa mun meira gaman að.
Stemningin var mögnuð í evrópska liðinu en hún var byrjuð að byggjast upp nokkrum vikum fyrir mótið því allir kylfingar evrópska liðsins hópuðust saman á samskiptaforritið WhatsApp þar sem að þeir skiptust á skilaboðum og skemmtu sér í aðdraganda Ryder-bikarsins.

Minni endurnýjun
„Við erum allir búnir að vera í þessum hóp á WhatsApp í svolítinn tíma og það er ekkert nema ást þar. Það er ein stærsta ástæðan fyrir þessum sigri. Við náum allir svo vel saman,“ sagði glaðbeittur Rory McIlroy með kampavín í hönd á blaðamannafundi eftir sigurinn.„Það er bara eitthvað við þennan hóp manna. Liðið okkar er minna breytt alltaf á milli móta annað en hjá hinum. Við höfum meira að segja þekkt nýiðana í okkar liði í langan tíma. Við höfum byggt upp mikla vináttu á Evróputúrnum,“ sagði McIlroy.
En, það var ekki bara WhatsApp sem skilaði sigrinum því danski fyrirliðinn Thomas Björn lofaði sínum mönnum að fá sér húðflúr ef að Evrópa myndi hafa betur að þessu sinni.

Stórt húðflúr!
„Það var smá auka hvatning fyrir okkur þessa vikuna,“ sagði Ian Poulter við fréttamenn eftir sigurinn. Aðspurður hvað það væri greip McIlroy fram í: „Herra Björn gæti þurft að fara á tattústofu í vikunni.“Justin Rose spurði fyrirliðann sinn hvort hann ætlaði að fá sér flúr af úrslitum Ryder-bikarsins og hversu stórt það ætti að vera. Aftur greip Rory fram í: „Eins stórt og mögulegt er!“
„Þetta er versta ákvörðun vikunnar hjá mér,“ sagði Thomas Björn sem viðurkenndi að hafa lofað þessu húðflúri en það verður sett á stað sem bara eiginkona danans mun sjá.