Arnar Freyr frá Kristianstad til GOG Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. desember 2018 11:15 Arnar Freyr Arnarsson í landsleik. vísir/getty
Arnar Freyr Arnarsson, landsliðsmaður í handbolta, yfirgefur sænska meistaraliðið Kristianstad eftir tímabilið og gengur í raðir danska úrvalsdeildarliðsins GOG. Frá þessu er greint á Fynes.dk en hann gerir tveggja ára samning við GOG. Arnar, sem er 22 ára gamall, fór frá Fram til Kristianstad árið 2016 og hefur unnið sænsku deildina tvisvar í röð ásamt Ólafi Guðmundssyni og Gunnari Steini Jónssyni sem einnig spiluðu með honum þar. Ólafur er enn á mála hjá Kristianstad. Þessi öflugi línumaður hefur farið á síðustu tvö stórmót með íslenska landsliðinu en hann fór á kostum í síðustu tveimur leikjum Íslands í undankeppni EM 2020 á móti Grikklandi og Tyrklandi. Arnar hittir fyrir annan Íslending hjá GOG en þar spilar hornamaðurinn magnaði Óðinn Þór Ríkharðsson. Óðinn gekk í raðir danska liðsins frá FH í sumar eftir frábær ár í Hafnarfirðinum. „Við náðum að landa Arnari í baráttu við þýsk lið. Við erum mjög ánægðir með að hann valdi GOG. Við getum boðið honum að spila með topp félagi í Danmörku og það er meira spennandi fyrir suma heldur að spila með miðlungs liði í Þýskalandi,“ segir Kasper Jörgensen, yfirmaður handboltamál hjá GOG. GOG, sem er staðsett á Fjóni, er eitt besta liðið í Danmörku en það er í mikilli baráttu um deildarmeistaratitilinn í dönsku deildinni við Álaborg. Þessi tvö lið hafa nokkuð örugga forystu á næstu lið. Snorri Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson spiluðu með GOG á sínum tíma og þá þjálfari Guðmundur Guðmundsson danska liðið frá 2009-2010.
Handbolti Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira