Skóli í jaðartónlist Stefán Þór Hjartarson skrifar 10. desember 2018 09:00 Einar segir nokkra íslenska tónlistarmenn eiga góða möguleika á að komast inn í akademíuna. Fréttablaðið/Anton Brink
Red Bull Academy er eins konar tónlistarskóli orkudrykkjarisans Red Bull sem haldinn er annað hvert ár. Ekkert er til sparað og er ætlun skólans að styðja við bakið á ungum og upprennandi tónlistarmönnum og þá sérstaklega þeim sem koma úr rafskotinni tónlist og semja sína tónlist sjálf. Einar Stefánsson hjá Red Bull á Íslandi er gífurlega spenntur fyrir að fá íslenska listamenn í næsta skóla en aðeins einn íslenskur tónlistarmaður hefur tekið þátt en það var Auður sem fór til Toronto árið 2016. „Tónlistarakademía Red Bull er verkefni sem byrjaði árið 1998. Þá var hún haldin árlega alveg fram til ársins 2016 en þá var ákveðið að halda hana á tveggja ára fresti. Fyrsta akademían var haldin í Berlín og nú á 20 ára afmæli akademíunnar var hún haldin aftur þar í borg. Það er stofnun innan Red Bull sem sér einungis um þetta batterí. Fókusinn er að styðja við bakið á upprennandi tónlistarfólki og búa til nýjan vettvang fyrir áhugaverða, og oft svolítið öðruvísi, tónlistarmenn. Þetta eru tónlistarmenn sem eru á uppleið en ekki komnir þangað. Þetta eru listamenn sem gera hluti fyrir utan kassann. Þekktustu tónlistarmennirnir sem hafa verið þarna eru kannski Flying Lotus og Nina Kraviz.“Flying Lotus er stór í jaðar-hipphoppsenunni eftir útskriftina úr akademíunni.Þetta eru sem sagt ekki næstu poppstjörnur heimsins sem þarna nema tónlist í fimm vikur heldur tónlistarmenn sem starfa á jaðrinum. Flying Lotus hefur gert sýrt, rafskotið hipphopp í mörg ár, séð um alla tónlist á Adult Swim sjónvarpsstöðinni og unnið með mörgum stórum nöfnum í rapptónlist eins og Kendrick Lamar, Earl Sweatshirt og Mac heitnum Miller. Íslandsvinurinn Nina Kraviz frá Síberíu er einn stærsti teknólistamaður heimsins í dag og er eigandi plötufyrirtækisins ???? (trip) sem hefur haldið nokkur reiv í hellum á Íslandi.Nina Kraviz er Íslendingum kunn en hún fór í akademíuna árið 2006.„Hann Auðunn er fyrsti og eini íslenski tónlistarmaðurinn sem hefur farið í þessa akademíu. Hann er þar með kominn í spennandi hóp sem tekið er eftir víða um heim. Það er dómnefnd sem velur fólk inn enda berast hundruð umsókna í hverja akademíu. Þau velja 30 einstaklinga úr þessum umsóknum. Það sem þau leita að er auðvitað hvernig tónlistin er, hvort manneskjan sé að búa hana til sjálf og líka aldur – þau vilja helst fá inn yngri tónlistarmenn. Þau virðast vilja sjá krefjandi og tilraunakennda tónlist. Þetta er auðvitað skóli, sem sagt staður þar sem lærdómur á að eiga sér stað.“Þeir umsækjendur sem valdir eru sitja svo fyrirlestra og þá er fengið inn margt helsta atvinnufólk í tónlist í heiminum. Þarna koma tónlistarmenn, upptökustjórar, plötusnúðar og svo framvegis og lýsa reynslu sinni. Á hverjum degi í fimm vikur eru tveir fyrirlestrar á dag og þess á milli hittast þátttakendur og vinna tónlist saman. „Stúdentarnir“ koma líka fram í kringum hátíðina og spila á tónleikum. Næsta umsóknarferli er ekki fyrr en á næsta ári en Einar hvetur alla íslenska tónlistarmenn, sem hafa áhuga, til að sækja um en hann segir að margir tónlistarmenn hér á landi myndu klárlega falla undir það sem er verið að leita að hjá akademíunni.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Þjóðarsálin í reiðhöllinni Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Fleiri fréttir Lofar svakalegri veislu „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið „Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Yo-Yo Ma kemur til landsins „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Sjá meira