Enn ein lægðin tekur völdin síðdegis Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. desember 2018 08:14 Lægðin gengur yfir með tilheyrandi roki. Vísir/vilhelm
Enn ein lægðin nálgast nú landið og „tekur stjórnina á veðrinu“ þegar líður á daginn. Hún mun halda velli fram eftir morgundeginum, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Síðdegis gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt með rigningu en hægari vindur og þurrt norðanlands. Á morgun grynnist lægðin og suðaustanáttin gefur eftir en áfram má búast við vætu. Líkt og í dag verður vindur hægastur á Norðurlandi á morgun og þar helst áfram þurrt. Hiti verður víða 2 til 7 stig en kaldara á stöku stað fyrir norðan.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á sunnudag:Norðaustan 13-18 m/s á Vestfjörðum, annars austlæg átt, 8-13 og dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt á Vesturlandi. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.Á mánudag:Austlæg átt, 5-10 m/s framan af degi, en hvessir síðan, 13-20 um kvöldið, hvassast syðst. Rigning eða slydda víða um land, talsverð væta SA-lands, en úrkomulítið NV-til. Hiti víða 0 til 5 stig. Á þriðjudag:Norðaustanstrekkingur á Vestfjörðum, en annars mun hægari austanátt og rigning eða slydda með köflum. Hiti 0 til 5 stig. Á miðvikudag:Norðlæg átt með éljum, en úrkomulaust að kalla á sunnanverðu landinu. Hiti kringum frostmark. Á fimmtudag:Hægur vindur, bjart og vægt frost framan af degi, en síðan vaxandi suðaustanátt og hlýnar og fer að rigna SV-til.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Sjá meira