Handbolti

Bjarki Már Elísson komst ekki í æfingahóp Guðmundar: 20 manna hópur klár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson, Björgvin Páll Gústavsson, Aron Rafn Eðvarðsson og Rúnar Kárason eru allir í hópnum
Aron Pálmarsson, Björgvin Páll Gústavsson, Aron Rafn Eðvarðsson og Rúnar Kárason eru allir í hópnum Vísir/Daníel
Guðmundur Guðmundsson kynnti æfingahóp sinn fyrir HM í handbolta í Kringlunni í dag en íslenska landsliðið mun hefja æfingar á milli jóla og nýárs.

Guðmundur var áður búinn að tilkynna 28 manna hóp og fækkaði hann því um átta á listanum að þessu sinni.

Þessir tuttugu leikmenn munu væntanlega berjast um sautján laus sæti. Hvert lið má tilkynna inn sextán leikmenn en líklegast er að Guðmundur fari út til Þýskalands með sautján leikmenn.

Mesta athygli vekur að Bjarki Már Elísson leikmaður þýska liðsins Füchse Berlin, kemst ekki í tuttugu manna æfingahópinn og þar eru líka bara tveir markverðir. Guðmundur er því þegar búinn að velja þá markverði sem hann ætlar að treysta á á HM í handbolta í janúar.

Guðmundur ræddi þá ákvörðun að velja ekki Bjarka.  „Þetta var mjög erfitt val. Gríðarlega erfitt. Við Gunnar erum búnir að liggja yfir þessu í langan tíma. Höfum skoðað alla vinkla á þessu. Erum með þrjá frábæra vinstri hornamenn en gátum bara valið tvo,“ sagði Guðmundur á fundinum.

Markverðir Íslands á HM 2019 verða því þeir Björgvin Páll Gústavsson og Aron Rafn Eðvarðsson.

Guðmundur er með tvo leikmenn í hvoru horni og svo tvo leikmenn með það aðalhlutverk í liðinu að spila vörn.

Fjölmennasta leikstaðan er leikstjórnendastaðan en þar eru fjórir leikmenn. Janus Daði Smárason hefur reynslu af stórmótum en þar eru líka ungu strákarnir Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Haukur Þrastarson.

Fimm leikmenn úr Olís deildinni eru í æfingahópnum en auk Selfyssinganna Elvars og Hauks eru þar Ágúst Birgisson úr FH, Ýmir Örn Gíslason úr Val og Daníel Þór Ingason úr Haukum.

Vísir hafði ekki alveg rétt fyrir sér þegar við spáðum í morgun um hvernig hópurinn myndi líta út. Við vorum með markvörðinn Daníel Freyr Andrésson og hornamanninn Bjarki Már Elísson inni á kostnað þeirra Janus Daða Smárasonar og Arnars Birkis Hálfdánssonar.

Strákarnir okkar hefja æfingar 27. desember næstkomandi. HM-hópurinn verður síðan valinn í byrjun næsta árs.

Íslenska landsliðið heldur síðan til Noregs 2. janúar og tekur þar þátt í Gjendsidige Cup. Þaðan fer liðið til Munchen í Þýskalandi 9. janúar og er fyrsti leikurinn á HM gegn Spánverjum föstudaginn 11. janúar.

Æfingahópur Íslands fyrir HM í handbolta 2019:

Markverðir:

Björgvin Páll Gústavsson, Skjern

Aron Rafn Eðvarðsson, Hamburg SV

Vinstra horn:

Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Neckar Löwen

Stefán Rafn Sigurmannsson, Pick Szeged

Vinstri skyttur:

Aron Pálmarsson, Barcelona

Ólafur Guðmundsson, Kristianstad

Leikstjórnendur:

Elvar Örn Jónsson, Selfoss

Gísli Þorgeir Kristjánsson, Kiel

Haukur Þrastarson, Selfoss

Janus Daði Smárason, Álaborg

Hægri skyttur:

Arnar Birkir Hálfdánsson, SönderjyskE

Ómar Ingi Magnússon, Álaborg

Rúnar Kárason, Ribe-Esbjerg

Hægra horn:

Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer

Sigvaldi Guðjónsson, Elverum

Línumenn:

Arnar Freyr Arnarsson, Kristianstad

Ágúst Birgisson, FH

Ýmir Örn Gíslason, Valur

Varnarmenn:

Ólafur Gústafsson, KIF Kolding

Daníel Þór Ingason, Haukar



Þessir voru á 28 manna listanum en komust ekki í æfingahópinn

Markmenn:

Ágúst Elí Björgvinsson, Sävehof

Daníel Freyr Andrésson, Val

Vinstra horn:

Bjarki Már Elísson, Füchse Berlin

Vinstri skytta:

Róbert Aron Hostert, Val

Hægri skytta:

Teitur Örn Einarsson, Kristianstad

Hægra horn:

Óðinn Þór Ríkharðsson, GOG

Línumenn:

Heimir Óli Heimisson, Haukum

Sveinn Jóhannsson, ÍR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×