Sjáðu stoðsendingu Arons sem allir eru að tala um Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2018 13:30 Aron Pálmarsson. Vísir/Getty
Stoðsending Arons Pálmarssonar í Meistaradeildinni í handbolta um helgina var fyrir langtum lengra komna. Aron Pálmarsson átti fínan leik með Barcelona í Meistaradeildinni um helgina en það er sérstaklega ein af stoðsendingum hans í leiknum sem hefur verið á allra vörum. Aron skoraði eitt af mörkum helgarinnar í úttekt EHFTV eins og sjá má hér fyrir neðan en markið skoraði hann með neglu upp í þaknetið. Þetta var eina mark Hafnfirðingsins í leiknum.Aron var valinn maður leiksins í þessum átta marka sigri Barcelona og ekki af ástæðulausu. Aron stjórnaði sóknarleik Barcelona frábærlega og átti hverja gullsendinguna á fætur annarri. Eitt skorað mark segir ekki nærri því alla söguna. Stoðsendingin hans inn á línuna á Frakkann Ludovic Fabregas var örugglega flottasta sending leiksins. Leikmenn Vardar héldu að þeir væru búnir að loka fyrir sendingaleið Arons inn á línuna en Aron átti ás upp í erminni. Aron keyrði erfiðleikastuðulinn upp úr öllu valdi þegar hann kom boltanum á hárréttan stað inn á Frakkann öfluga. Það hefur löngum með erfiðari sendingum þegar leikmenn senda boltann án þess að horfa eða með því að senda boltann í gegnum klofið á sér. Hvað þá ef menn sameina það í sömu sendingu eins og Aron gerði. Sem betur fer var Ludovic Fabregas líka vel vakandi, greip boltann og skilaði honum í netið. Það má búast við því að Ludovic Fabregas hafi fengið að kynnast svona sendingum á æfingum Barcelona. Það má sjá þessa stórkostlegu stoðsendingu Arons inn á Ludovic Fabregas hér fyrir neðan.
Handbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sjá meira