Innlent

Stúlkan tekur afsökunarbeiðni Björns Braga góða og gilda

Kjartan Kjartansson skrifar
Björn Bragi hefur beðið stúlkuna og foreldra hennar afsökunar á framferði sínu.
Björn Bragi hefur beðið stúlkuna og foreldra hennar afsökunar á framferði sínu.
Sautján ára gömul stúlka sem Björn Bragi Arnarson, grínisti, viðurkennir að hafa káfað á segir að snerting hans hafi valdið henni óþægindum. Í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum hafnar hún því hins vegar að atvikið teljist alvarleg kynferðisleg áreitni og segist taka afsökunarbeiðni hans góða og gilda.

Björn Bragi baðst afsökunar á framferði sínu í yfirlýsingu í morgun eftir að myndskeið sem sýndi hann káfa á sautján ára gamalli stúlku fór í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. Hann hætti í kjölfarið sem þáttastjórnandi Gettu betur á Ríkisútvarpinu.

Í yfirlýsingu sem foreldrar stúlkunnar sendi fjölmiðlum í kvöld segir stúlkan að sér hafi verið brugðið þegar Björn Bragi snerti hana á veitingastað Hlöllabáta á Akureyri aðfaranótt sunnudags. Það hafi valdið henni óþægindum. Hún nefnir Björn Braga þó ekki á nafn í yfirlýsingunni.

Hún segist hafa sent myndskeið af atvikinu til nokkurra vina í hugsunarleysi. Í framhaldi myndskeiðið farið víða og hún hafi fljótlega fengið viðbrögð frá fólki með sterkar skoðanir um kynferðislegt athæfi og áreitni.

„Það var þá sem það rann upp fyrir mér að það var komin af stað atburðarás sem ég ræð ekkert við og var aldrei ætlunin. Ég hef haft af þessu mikil óþægindi einkum frá fjölmiðlum þar sem verið er að gera úr þessu eitthvað sem ég upplifði ekki,“ segir í yfirlýsingunni.

Óskar stúlkan þess að umfjölluninni linni og vill leiðrétta fullyrðingar um að atvikið hafi verið alvarleg kynferðisleg áreitni.

„Ég vil taka það fram að ég er 17 ára og fær um að meta sjálf samskipti við aðra einstaklinga og mín mörk,“ segir í yfirlýsingunni en stúlkan vill ekki að nafn sitt komi fram. Þá segir hún að Björn Bragi hafi nokkrum sinnum haft samband við sig og foreldra hennar og beðist afsökunar eftir að myndirnar fóru í dreifingu.

„Fyrirgefningin er tekin góð og gild af minni hálfu og foreldra minna. Ég bið einnig um að nafn mitt og persóna verði ekki umfjöllunarefni,“ segir í yfirlýsingunni.

Yfirlýsingin í heild

Ég sendi þessa yfirlýsingu til fjölmiðla, vegna frétta af atviki á veitingastað Hlöllabáta á Akureyri aðfaranótt sl., sunnudags, þar sem landsþekktur skemmtikraftur og fjölmiðlamaður er sakaður um háttsemi sem sé kynferðisleg áreitni við stúlku.

Ég er sú stúlka sem um ræðir.

Ég tók mynd af þessum þekkta manni þegar hann snerti mig, mér var brugðið og þetta olli mér óþægindum. Ég sendi þetta myndskeið til nokkurra vina minna sem var hugsunarleysi. Í framhaldi var það komið mjög víða og ég fékk fljótlega viðbrögð frá fólki sem var með mjög sterkar meiningar um kynferðislegt athæfi og áreitni. Það var þá sem það rann upp fyrir mér að það var komin af stað atburðarás sem ég ræð ekkert við og var aldrei ætlunin. Ég hef haft af þessu mikil óþægindi einkum frá fjölmiðlum þar sem verið er að gera úr þessu eitthvað sem ég upplifði ekki.

Ég óska einlæglega að þessu linni og að það sé hér með leiðrétt að þetta atvik var ekki með þeim hætti sem reynt er að setja í búning alvarlegrar kynferðislegrar áreitni. Ég vil taka það fram að ég er 17 ára og fær um að meta sjálf samskipti við aðra einstaklinga og mín mörk.

Ég vil taka fram að mjög fljótlega í því ferli sem fór af stað eftir að myndirnar fóru út, hefur þessi einstaklingur sem í hlut átti, nokkrum sinnum haft samband við mig og foreldra mína og beðist fyrirgefningar á framkomu sinni.

Fyrirgefningin er tekin góð og gild af minni hálfu og foreldra minna.

Ég bið einnig um að nafn mitt og persóna verði ekki  umfjöllunarefni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×